Back to results

Reykjavík University

Lífsferilsmat söluvara : hvert er eðli og umfang lífsferilsmats söluvara hjá 4 íslenskum fyrirtækjum og eru þau að nýta sér gæðastaðalinn ISO14040:2006E?

Abstract

dc:description.abstract

Vitundavakning um lífsferilsmat söluvara (e. Life Cycle Assessment, LCA) hefur aukist mikið á síðustu örfáu árum. Fyrirtæki eru farin að sjá hag sinn í því að sýna fram á kolefnisspor sitt og birta fyrir viðskiptavini sína. Einhver fyrirtæki á Íslandi eru farin að skoða LCA söluvara sinna. Skoðað var í þessari rannsókn fjögur íslensk fyrirtæki sem eru byrjuð að skoða LCA, hvaða umfang þau eru að nota í þessum útreikningum sínum og hvort þau séu öll að vinna eftir sama gæðastaðli. Sérstaklega var spurt hvort verið væri að nota ISO 14040:2006E. Niðurstöður sýndu að mjög ólíkt var hvaða þætti fyrirtækin eru að taka með inn í umfang útreiknings á LCA. Sem dæmi um slíka þætti má nefna hráefni, umbúðir og flutning. Öll fyrirtækin studdust við gæðastaðal en þó voru fæst þeirra sérstaklega að miðast við ISO 14040:2006E. Þrátt fyrir það voru þau að uppfylla flesta þá þætti sem taldir eru þar fram. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Tandur hf. og voru niðurstöður þessarar rannsóknar hagnýttar með því að taka saman það umfang sem Tandur hf. mun í framhaldi nota við sína LCA útreikninga. Reiknað var LCA fyrir kerfishreinsiefnið Brite-Cip. Að lokum var sú niðurstaða birt í vefverslun fyrirtækisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Helga Lárusdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42048
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42048

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Helga Lárusdóttir 1976-. Lífsferilsmat söluvara : hvert er eðli og umfang lífsferilsmats söluvara hjá 4 íslenskum fyrirtækjum og eru þau að nýta sér gæðastaðalinn ISO14040:2006E?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42048