Back to results

Reykjavík University

Hvernig geta íslensk skattyfirvöld nálgast túlkun á hugtakinu raunverulegur eigandi?

Abstract

dc:description.abstract

Hvernig geta íslensk skattyfirvöld nálgast túlkun á hugtakinu raunverulegur eigandi? Í þessari ritgerð verður leitast við að skoða hugtakið raunverulegur eigandi og hvernig íslensk skattyfirvöld geta nálgast túlkun á hugtakinu. Hugtakið raunverulegur eigandi (e. beneficial owner) er að finna í alþjóðlegum tvísköttunarsamningum sem hafa verið túlkaðir í samræmi við samnings¬fyrirmynd Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD). Hugtakið var fyrst sett fram í 10. gr. samningsfyrirmyndar OECD árið 1977 sem skilyrði fyrir því að rétthafi tekna, þ.e. arðs, vaxta og þóknana, geti einn notið þeirra skattalegu ívilnana sem tvísköttunarsamningar tryggja aðilum samnings. Hér á landi er lítil reynsla komin á notkun hugtaksins raunverulegur eigandi í dómaframkvæmd og er það eingöngu að finna í einum úrskurði yfirskattanefndar frá 2001. Telur höfundur brýnt að hugtakið verði skilgreint og innleitt í íslensk skattalög og verði það gert m.a. með hliðsjón af samningsfyrirmynd OECD og með hliðsjón af því hvernig önnur OECD-ríki hafa túlkað hugtakið í framkvæmd. Engar slíkar skilgreiningar finnast í íslenskum tekjuskattslögum, ekki frekar en skilgreiningar á öðrum mikilvægum hugtökum í skattarétti hérlendis. Þrátt fyrir að vísað sé til hugtaksins raunverulegur eigandi í fjölda tvísköttunarsamninga um heim allan þá er ekki að finna neina almenna alþjóðlega skilgreiningu á hugtakinu. Óskýrt er samkvæmt dómaframkvæmdum hversu langt skattyfirvöld mega ganga með því að nota regluna um raunverulegan eiganda sem skattasniðgöngureglu. Hafa fræðimenn bent á að erfitt muni reynast að móta almenna alþjóðlega þýðingu á hugtakinu meðan hvorki er til staðar almenn skilgreining á hugtakinu í samningsfyrirmynd OECD né sérstakur OECD-dómstóll í slíkum málum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björg Ósk Gunnarsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41708
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41708

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björg Ósk Gunnarsdóttir 1992-. Hvernig geta íslensk skattyfirvöld nálgast túlkun á hugtakinu raunverulegur eigandi?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41708