Reykjavík University
Markaðsmisnotkun í formi sýndarviðskipta með hliðsjón af einkaréttarlegum úrræðum vegna þeirra
Abstract
dc:description.abstractÁkveðin þáttaskil urðu hvað varðar efnahagsbrot í kjölfar falls íslensku viðskiptabankanna í október 2008. Í kjölfar hrunsins féllu þó nokkrir dómar fyrir íslenskum dómstólum þar sem sakfellt var fyrir markaðsmisnotkun, meðal annars í formi sýndarviðskipta. Málin eru umfangsmikil og myndu án efa teljast með stærri sakamálum á Íslandi. Flest voru þetta þó opinber sakamál sem ekki tóku á einkaréttarlegum úrræðum en þegar markaðsmisnotkun í formi sýndarviðskipta er beitt getur skapast tjón fyrir þann fjárfesti sem fyrir henni verður. Sýndarviðskipti er ein tegund markaðsmisnotkunar en það er þegar átt er í viðskiptum eða tilboðsgerð sem er byggð á tilbúningi eða þar sem notuð eru einhver form blekkingar eða sýndarmennsku. Í ritgerðinni er leitast við að svara rannsóknarspurningunni, hvaða einkaréttarlegu úrræði eru til staðar fyrir aðila sem verða fyrir tjóni vegna markaðsmisnotkunar í formi sýndarviðskipta og hvaða úrræði er hagnýtast að beita. Þau úrræði sem koma aðallega til skoðunar eru á sviði samninga-, kaupa-, kröfu- og skaðabótaréttar. Verðbréfaviðskipti eru í eðli sínu þannig úr garði gerð að í fæstum tilfellum á viðkomandi í persónulegum samskiptum við gagnaðila nema um sé að ræða utanþingsviðskipti. Þess vegna veit fjárfestir sjaldnast hver gagnaðili hans er í slíkum viðskiptum. Af því leiðir að úrræði á sviði samninga-, kaupa- og kröfuréttar eru ekki talin hentugasta úrræðið, sökum þess að þar er gert skilyrði að sýnt sé fram á samningssamband milli tjónþola og hins brotlega. Skaðabætur utan samninga eru þess vegna það úrræði sem tjónþolar kynnu helst að geta nýtt sér og væri líklegast til að bera árangur. Á hinn bóginn er gríðarlega erfitt fyrir tjónþola að sækja skaðabætur fyrir markaðsmisnotkun vegna þess hve erfitt er að sanna annars vegar orsakatengsl og hins vegar hvert umfang tjónsins er, þar sem enginn getur með vissu sagt til um hvað hefði átt sér stað á markaðnum, ef ekki hefði verið fyrir markaðsmisnotkunina.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Svava Sól Matthíasdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/41503
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/41503