Back to results

Reykjavík University

Efndahindranir á tímum Covid-19

Abstract

dc:description.abstract

Efnahindranir á tímum Covid-19 Snemma árs 2020 stóð heimsbyggðin frammi fyrir ógn, af völdum kórónuveirunnar Covid-19, sem átti eftir að hafa umtalsverð áhrif á öll mannleg samfélög. Við þetta skapaðist fordæmalaust ástand og yfirvöld ríkja heims brugðust við með umfangsmiklum aðgerðum eins og samkomutakmörkunum, lokun landamæra og stöðvun samgangna. Leiddi þetta til þess að sumir atvinnurekendur stóðu frammi fyrir algjöru tekjufalli. Í ritgerðinni er sjónum beint að réttarreglum sem haft geta áhrif í tengslum við efndir samninga vegna Covid-19. Fyrst má nefna ólögfestu regluna um force majeure, sem getur haft tímabundin áhrif á réttarstöðu samningsaðila þannig að skyldur þeirra falla tímabundið niður. Þótt reglan komi vissulega til skoðunar í tengslum við Covid-19 svarar hún því einungis með takmörkuðum hætti hvernig fer um uppgjör aðila þegar upp koma force majeure atvik. Reglan tekur þannig ekki á réttaráhrifum til lengri tíma og leysir ekki nema að hluta úr áleitnum spurningum í tengslum við t.d. viðvarandi samninga. Þó er ljóst að sjónarmið að baki reglunni geta haft veigamikil áhrif þegar til greina kemur að beita ógildingarreglum samningaréttar, en að mati höfundar er beiting force majeure ásamt 36. gr. sml. í mörgum tilfellum nærtækasti kosturinn til að leiða til lykta ágreining um efndahindranir á tímum Covid-19. Reglur um stjórnunarábyrgð geta leitt til brottfalls efndaskyldna á meðan hindrun varir en þær afmarkast við ákveðin réttarsvið og verður því að jafnaði ekki beitt sem almennri reglu. Þá er reglunni um brostnar forsendur sá þröngi stakkur skorinn að hún leiðir einungis til ógildingar í heild eða að hluta, en ekki breytinga á ákvæðum samnings. Reglan getur þó átt við í mörgum tilvikum. Beðið er eftir niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-2261/2020 og þá einkum dómi Hæstaréttar. Mikilvægt er að niðurstaða Hæstaréttar svari því með fordæmisgefandi og almennum hætti hvernig leysa ber úr samningsbrotamálum á tímum Covid-19.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Haukur Þorsteinsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40279
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40279

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Þorsteinsson 1986-. Efndahindranir á tímum Covid-19. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40279