Back to results

Reykjavík University

Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði. Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Höskuldur Gunnlaugsson 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40225
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40225

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Höskuldur Gunnlaugsson 1994-. Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40225