{"id":{"repo_id":"reykjavik","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/40225"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/reykjavik/oai:skemman.is:1946/40225","repository":{"repo_id":"reykjavik","name":"Reykjavík University","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar","abstract":"Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði. Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á.","abstract_html":"Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði. Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á.","abstract_has_math":false,"creators":["Höskuldur Gunnlaugsson 1994-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskólinn í Reykjavík"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2022,"date_issued":"2022-01-05T11:25:09Z","date_published":"2022-01-05T11:25:09Z","updated_at":"2026-07-27T20:39:26Z","subjects":["Viðskiptafræði","Hlutabréfamarkaðir","Lítil og meðalstór fyrirtæki"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/40225","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskólinn í Reykjavík"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Höskuldur Gunnlaugsson 1994-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2022-01-05T11:25:07Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2022-01-05T11:25:07Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2022-01-05T11:25:09Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Viðskiptafræði","Hlutabréfamarkaðir","Lítil og meðalstór fyrirtæki"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/40225"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði. Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskólinn í Reykjavík"],"dc:creator":["Höskuldur Gunnlaugsson 1994-"],"dc:date.accessioned":["2022-01-05T11:25:07Z"],"dc:date.available":["2022-01-05T11:25:07Z"],"dc:date.issued":["2022-01-05T11:25:09Z"],"dc:description.abstract":["Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði. Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/40225"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Viðskiptafræði","Hlutabréfamarkaðir","Lítil og meðalstór fyrirtæki"],"dc:title":["Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T20:39:26Z"}