Reykjavík University
Ávinningur hugbúnaðarteymis af niðurstöðum úr viðmótsprófunum : rannsókn framkvæmd í samvinnu við notendur leikskólakerfis og framleiðendur þess
Abstract
dc:description.abstractÞegar nýr hugbúnaður er gefinn út er mikilvægt að byggja hann á þörfum notenda, passa að hann sé auðveldur í notkun og upplifun af notkuninni sé góð. Oft eru framkvæmdar viðmótsprófanir á hugbúnaðarkerfum með notendum til að fanga hversu auðvelt er að nota kerfin og finna helstu vandamál sem þeir geta lent í. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða nytsemi viðmótsprófana og ávinning af viðmótsprófunum fyrir hugbúnaðarteymi kerfis. Framkvæmdar voru viðmótsprófanir á nýrri útgáfu af leikskólakerfi með núverandi notendum þess. Notast var við þrjár mismunandi upplýsingaöflunaraðferðir í verkefninu. Þær eru viðmótsprófanir með notendum til að meta hversu auðvelt var að nota kerfið, kóðun hugbúnaðarteymis á vandamálalista og fundur með hugbúnaðarteymi til að meta ávinning af niðurstöðum prófananna fyrir hugbúnaðarteymið. Niðurstöður viðmótsprófananna með notendum sýndu að þeir lentu í töluvert mörgum vandamálum og sum þeirra flokkuð sem mjög alvarleg. Á fundi með hugbúnaðarfyrirtækinu kom í ljós að sum af vandamálunum sem komu upp í prófununum var búið að láta þau vita af og þau byrjuð að laga. Fyrirtækið gerði ekki viðmótsprófanir á nýju uppfærslunni áður en hún var gefin út en vilja bæta því við í verklag sitt. Þeim fannst mjög gagnlegt að fá niðurstöðurnar úr prófununum og fengu nýja sýn á ákveðnum þáttum kerfisins. Þeim fannst mjög gott að fá utanaðkomandi aðila í prófanirnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Lind Sveinsdóttir 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39390
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39390