Back to results

Reykjavík University

Næringarþörf og næring afreksíþróttafólks í Crossfit og ólympískum lyftingum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að skoða mikilvægi næringar í íþróttum með áherslu á afreksíþróttir og hvort afreksíþróttafólk í CrossFit og Ólympískum lyftingum borði nóg og í samræmi við ráðleggingar. Rannsóknin var megindleg. Spurningalisti var lagður fyrir CrossFit og Ólympískt afreksíþróttafólk, þátttakendur voru í heildina sjö. Einnig skiluðu þátttakendur inn matareyðublaði þar sem næring þeirra yfir einn dag kom fram. Grunnurinn að næringu fyrir íþróttafólk er hollur matur og næring í góðu jafnvægi. Íþróttafólk hefur þó sérstakar næringarlegar þarfir. Það þarf að passa upp á að neysla hitaeininga sé nægileg, ekki er óalgengt að afreksíþróttafólk nái ekki að neyta nægilega margra hitaeininga. Það eru vísbendingar að árangur, langvarandi eða mikillar áreynslu, sé aukinn með ríflegri neyslu kolvetna. Að innbyrða hágæða prótein er árangursrík leið til að viðhalda, endurheimta og mynda beinagrindarvöðvaprótein. Fita er lykilatriði í mataræði íþróttafólks þegar kemur að því að uppfylla hitaeiningafjölda sem neyta á yfir daginn. Vítamín eru líkamanum lífsnauðsynleg og hafa áhrif á fjölda lífeðlisfræðilegra ferla sem eru mikilvægir fyrir íþróttaiðkun. Sum lífeðlisfræðileg hlutverk steinefna eru mikilvæg fyrir íþróttafólk. Helstu niðurstöður voru að þátttakendur þessarar rannsóknar neyta of lítið af hitaeiningum miðað við reiknaða orkuþörf. Einnig borðuðu þeir of lítið af kolvetnum en neyttu ríflega af próteinum. Íþróttafólkið ætti því að einbeita sér minna að próteingjöfum og reyna að borða meira af fæðu sem er auðug af kolvetnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Arna Eyþórsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38885
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38885

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Arna Eyþórsdóttir 1998-. Næringarþörf og næring afreksíþróttafólks í Crossfit og ólympískum lyftingum. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38885