Back to results

Reykjavík University

Hreyfing og næring á meðgöngu og eftir barnsburð : meðgöngu & mömmu hreysti

Abstract

dc:description.abstract

Fyrir nokkrum áratugum síðan var líkamsþjálfun á meðgöngu talin óráðleg og jafnvel skaðleg fyrir móður og fóstur en sem betur fer er þekkingin alltaf að aukast hve miklu máli hreyfing og næring skiptir þegar kemur að því að jafna sig eftir meðgöngu. Hreyfing er ekki einungis góð fyrir líkama móðirinnar heldur getur hún verið mikilvægt verkfæri til að styrkja andlegu heilsu hennar. Það vita allir hve frelsandi það er að fá smá útrás á æfingu og kannski fáir sem þurfa eins mikið á endorfín losun að halda og móðir með ungabarn. Mikilvægt er að huga að góðri næringu á meðgöngunni og eftir fæðingu, borða á tveggja til þriggja tíma fresti og ekki gleyma að drekka nóg af vatni. Móðirin er betur í stakk búin til þess að annarst barnið og sjálfa sig ef hún er vel nærð. Fræðilegur bakrunnur þessa verkefnis var notaður sem grunnur að fræðsluefni sem sett var upp og birt á vefsíðunni mogmhreysti.net sem er lokaafurð þessa verkefnis. Vefsíðan er sett upp sem vettvangur þar sem einstaklingar geta sótt sér fræðslu og hugmyndir af æfingum sem henta konum á meðgöngu og eftir barnsburð. Vefsíðan er ætluð sem vettvangur til þess að miðla þeim upplýsingum sem aflað var, til þeirra sem hafa áhuga. Á vefsíðunni má nálgast fróðleik tengdum næringu og hreyfingu á meðgöngu og eftir barnsburð ásamt æfingamyndböndum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elín Huld Sigurðardóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38839
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38839

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elín Huld Sigurðardóttir 1996-. Hreyfing og næring á meðgöngu og eftir barnsburð : meðgöngu & mömmu hreysti. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38839