Reykjavík University
Samgöngubætur : hagræn og félagsleg áhrif þeirra í nokkrum fámennum samfélögum
Abstract
dc:description.abstractUmræða um samgöngubætur og mikilvægi þeirra fyrir samfélög á landbyggðinni er oft áberandi. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvaða raunverulegu áhrif samgöngubætur hafa á fámenn samfélög. Til þess eru tvenn samgöngumannvirki á Vestfjörðum skoðuð, Vestfjarðagöng og Bolungarvíkurgöng. Rætt er um göngin hvort í sínu lagi. Áhrif þeirra á byggðaþróun, atvinnulíf, vinnumarkað og sveitarfélög eru skoðuð auk þess sem félagslegar afleiðingar þeirra eru metnar. Erfitt er að greina áhrif ganganna tveggja á byggðaþróun en ljóst er að atvinnulífið tekur þó nokkrum breytingum með tilkomu þeirra. Þjónusta færist í einn miðlægan kjarna á meðan iðnaðarfyrirtæki virðast færast út á jaðarinn. Breytingar á vinnumarkaði eru fyrst og fremst fólgnar í fjölbreyttari störfum en ekki virðast vera skýr merki um breytingar á atvinnuleysi eða tekjum. Í tilviki Vestfjarðaganga hefur orðið mikil hagræðing í rekstri sveitarfélaga og mörg þeirra sameinast í eitt. Opnun Bolungarvíkurganga hefur hins vegar ekki orðið hvati til sameiningar sveitarfélaga. Félagsleg áhrif ganganna tveggja virðast ansi mikil. Meirihluti þátttakenda í rannsókn þessari telur aðgengi að menningu og íþróttum hafa batnað með tilkomu ganganna og afgerandi meirihluti telur lífsgæði sín og öryggi hafa aukist svo um muni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bergljót Soffía Benediktsdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38769
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38769