Back to results

Reykjavík University

Nálgunarbann og brottvísun af heimili : uppfyllir íslensk löggjöf og framkvæmd ákvæði og markmið Istanbúl-samningsins?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að staðfæra hvort íslensk löggjöf og framkvæmd varðandi nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011 uppfylli ákvæði og markmið Istanbúl-samningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, varðandi brottvísun í neyð, nálgunarbann og aðra verndarúrskurði. Til að gera grein fyrir mikilvægi þessara úrræða í tengslum við ofbeldi gegn konum verður fyrst farið yfir skilgreiningar, afleiðingar og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum. Þá verður Istanbúl-samningnum gerð góð skil og því næst farið yfir aðdraganda og þróun löggjafar um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Að lokum verður dómaframkvæmd síðustu ára skoðuð og litið til hinna Norðurlandanna varðandi sambærilega löggjöf, þróun og framkvæmd. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að úrræðunum um nálgunarbann og brottvísun af heimili má beita mun oftar en gert er nú þegar. Istanbúl-samningurinn tekur ofbeldi gegn konum mjög alvarlega og GREVIO, eftirlitsnefnd með Istanbúl-samningnum á vegum Evrópuráðsins, hefur gagnrýnt nágrannalönd okkar fyrir framkvæmd þeirra á samningnum, að þau gangi ekki nógu langt í að veita konum vernd gegn ofbeldi. Markmiðið með úrræðunum er að skapa fjarlægð á milli geranda og þolanda því það er talið vera ein áhrifaríkasta leiðin til að tryggja öryggi þolenda heimilisofbeldis. Öryggi þolanda skal vera í fyrirrúmi þegar gripið er til þeirra ráðstafana sem samningurinn gerir ráð fyrir. Til að hægt sé að auka notkun úrræðisins um brottvísun af heimili, þarf að efla fræðslu til almennings um tilvist úrræðanna og auka þekkingu lögreglu og dómstóla á eðli og afleiðingum þeirra brota sem krefjast þess að þessum úrræðum sé beitt. Þá þurfa að vera tiltækir gististaðir utan heimilis og meðferðarúrræði til að hætta að beita ofbeldi fyrir hina brottviknu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arna Björg Jónasdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38709
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38709

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arna Björg Jónasdóttir 1984-. Nálgunarbann og brottvísun af heimili : uppfyllir íslensk löggjöf og framkvæmd ákvæði og markmið Istanbúl-samningsins?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38709