Back to results

Reykjavík University

Er vinnumansal veruleiki á Íslandi ?

Abstract

dc:description.abstract

Er vinnumansal raunveruleiki á Íslandi ? Helsta markmið ritgerðarinnar er að kanna hvort vinnumansal sé veruleiki á Íslandi og er áhersla lögð á þolendur af erlendum uppruna. Lagaskilgreining mansals er þröng í íslenskri löggjöf enda getur verið erfitt að átta sig á hvenær um vinnumansal er að ræða, erfitt er að sækja slík mál fyrir dómstólum og dæmd viðurlög eru væg. Fyrir skipulagða brotahópa og aðra einstaklinga getur mikill fjárhagslegur ávinningur falist í því að stunda vinnumansal. Í upphafi rannsóknarvinnunnar kom í ljós skortur á íslenskum fræðilegum heimildum og reynslu í þessum málaflokki. Einungis hefur verið sakfellt einu sinni fyrir vinnumansal á Íslandi og má telja að takmarkaðri löggjöf megi kenna þar um. Til að svara þessum spurningum var framkvæmd ítarleg rannsókn. Viðtöl voru tekin við verkamenn af erlendum uppruna sem telja sig orðið hafa fyrir brotum á íslenskum vinnumarkaði, við lögmenn, fagaðila innan lögreglu og stéttarfélaga, félagsráðgjafa og fleiri sem gegna mikilvægu hlutverki við þjónustu og aðstoð við brotaþola vinnumansals og greiningu á þeim. Málin sem lögð eru fram byggjast á raunverulegri reynslu brotaþola. Við vinnslu rannsóknar var höfundur meðvitaður um áhrif og skyldur sínar sem túlkur og opinber starfsmaður og var það haft í huga við gagnaöflun, rannsóknavinnu og skrif.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Mirabela Aurelia Blaga 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/38688
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/38688

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Mirabela Aurelia Blaga 1983-. Er vinnumansal veruleiki á Íslandi ?. 2021. http://hdl.handle.net/1946/38688