Back to results

Reykjavík University

Getur land sem er búið að lögfesta barnasáttmálann samþykkt að foreldrar í krafti forsjárvalds brjóti gegn friðhelgi barna á netinu?

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur þessarar ritgerðar er að leita svara við þeirri spurningu hvort að land sem lögfest hefur sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins geti samþykkt að foreldrar í krafti forsjárvalds brjóti gegn friðhelgi barna á netinu. Á undanförnum árum hefur meðvitund almennings um réttindi barna til persónuverndar og friðhelgi einkalífs aukist. Þau réttindi eru þó mun umdeildari en til dæmis réttur barna til verndar gegn ofbeldi og illri meðferð. Engu að síður er netið sá vettvangur þar sem börn eru afhjúpuð, án umhugsunar, með orðum eða myndefni, og þá jafnvel af þeim sem eiga að bera hag þeirra fyrir brjósti. Í ljósi þess að löggjöfin er yfirleitt langt á eftir þeim tæknilega raunveruleika sem við búum við má velta fyrir sér hvort dómaframkvæmd í framtíðinni muni skýra hvort og þá hvaða þýðingu ákvæði laga um bann við vanvirðandi háttsemi gagnvart börnum hefur varðandi samfélagsmiðla. Með lögfestingu barnasáttmálans varð íslenska ríkið skuldbundið til að virða og tryggja öllum börnum þau réttindi sem sáttmálinn mælir fyrir um. Þegar talað er um réttindi barna er átt við allt það sem börn þurfa á að halda til að geta lifað, þroskast og liðið vel. Þar er m.a. kveðið á um rétt barna til að tjá sig um öll þau mál sem þau varða, rétt þeirra til samráðs sem er nátengdur rétti þeirra til friðhelgi einkalífs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hörn Harðardóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36032
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36032

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hörn Harðardóttir 1979-. Getur land sem er búið að lögfesta barnasáttmálann samþykkt að foreldrar í krafti forsjárvalds brjóti gegn friðhelgi barna á netinu?. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36032