Back to results

Reykjavík University

Siðareglur fyrir alþingismenn : samspil siðareglna við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um siðareglur fyrir alþingismenn og samspil þeirra við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna. Í ritgerðinni er annars vegar leitast eftir að svara undir hvaða kringumstæðum geta siðareglur fyrir alþingismenn sett tjáningu þeirra skorður og hins vegar, hvort beiting siðareglna gæti leitt til takmörkunar á tjáningarfrelsi þingmanna. Áhersla var lögð á tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna utan Alþingis. Alþingismenn settu sér siðareglur í mars 2016. Tilgangur þeirra er að efla gagnsæi í störfum alþingismanna og ábyrgðarskyldu þeirra sem og traust og tiltrú almennings á Alþingi. Siðareglurnar gilda við opinbera framgöngu þingmanna og snerta skyldur þeirra sem þjóðkjörinna fulltrúa og er þeim ætlað að koma til fyllingar öðrum lögum og reglum sem gilda um alþingismenn. Þingmenn njóta víðtæks tjáningarfrelsis og þarf mikið að koma til svo heimilt sé að skerða tjáningu þeirra og takmarka tjáningarfrelsi þeirra. Siðareglur hafa ekki stöðu laga og geta þar af leiðandi ekki takmarkað tjáningarfrelsi þingmanna innan Alþingis. Þær geta þó sett tjáningu þeirra, utan þingsins, ákveðnar skorður. Lítið hefur reynt á siðareglurnar frá gildistöku þeirra og litast niðurstöður ritgerðarinnar nokkuð af þeirri staðreynd. Þó gefur sú framkvæmd, sem hefur átt sér stað, ákveðnar vísbendingar um hvenær mögulegt sé að setja tjáningunni skorður. Við mat á því hvort skerðingin sé heimil þarf einkum að líta til hvort tjáningin eigi erindi við almenning, að hverjum hún beinist og sannleiksgildi ummæla. Af núverandi framkvæmd siðareglnanna er ekki að sjá að beiting þeirra takmarki tjáningarfrelsi þingmanna. Hins vegar verður að gæta þess að þingmenn fái það ekki á tilfinninguna að siðareglurnar ógni tjáningarfrelsi þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Bóel Stefánsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36024
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36024

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Bóel Stefánsdóttir 1993-. Siðareglur fyrir alþingismenn : samspil siðareglna við tjáningu og tjáningarfrelsi þingmanna. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36024