Back to results

Reykjavík University

Beiting samkeppnisreglna í litlum hagkerfum

Abstract

dc:description.abstract

Flest vestræn ríki, og mörg önnur, þar á meðal Ísland, hafa lögfest sérstakar samkeppnisreglur. Á Íslandi gilda þannig samkeppnislög nr. 44/2005, með síðari breytingum. Fyrirmyndir flestra þessara reglna eru samkeppnisreglur þær sem gilda í Bandaríkjunum (USA) annars vegar og innan Evrópusambandsins (ESB) hins vegar. Í ritgerð þessari verða kannaðar rætur þessara reglna og þau sjónarmið sem liggja þeim að baki. Sérstaklega verður hugað að því álitaefni hvort samkeppnisreglur, sem mótaðar eru á jafn stórum og víðfeðmum markaðssvæðum og á við um USA og ESB eigi að öllu leyti jafn vel við á mun minni markaðssvæðum, t.d. Íslandi. Kannaðar verða helstu áskoranir sem sem fylgja framkvæmd samkeppnisreglna á litlum mörkuðum. Sérstaklega verður horft til reglna sem gilda um samruna fyrirtækja og reglna sem gilda um markaðsráðandi stöðu og lagt mat á hvort að gildandi samkeppnisreglur að þessu leyti séu til þess fallnar að hámarka velferð neytenda í litlum hagkerfum. Í framhaldinu er litið til réttarframkvæmdar bæði í stærri og minni ríkjum, í þeim tilgangi að komast að því hvort og þá hvers konar tillit þurfi að taka til stærðar hagkerfisins og markaðsaðstæðna sem einkenna lítil hagkerfi, við beitingu samkeppnisreglna. Að lokum er dregin saman niðurstaða um hvað það er sem skiptir mestu máli hvað varðar mótun samkeppnisstefnu í litlum hagkerfum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alfreð Andri Alfreðsson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36023
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36023

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alfreð Andri Alfreðsson 1990-. Beiting samkeppnisreglna í litlum hagkerfum. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36023