Abstract
dc:description.abstractFlest vestræn ríki, og mörg önnur, þar á meðal Ísland, hafa lögfest sérstakar samkeppnisreglur. Á Íslandi gilda þannig samkeppnislög nr. 44/2005, með síðari breytingum. Fyrirmyndir flestra þessara reglna eru samkeppnisreglur þær sem gilda í Bandaríkjunum (USA) annars vegar og innan Evrópusambandsins (ESB) hins vegar. Í ritgerð þessari verða kannaðar rætur þessara reglna og þau sjónarmið sem liggja þeim að baki. Sérstaklega verður hugað að því álitaefni hvort samkeppnisreglur, sem mótaðar eru á jafn stórum og víðfeðmum markaðssvæðum og á við um USA og ESB eigi að öllu leyti jafn vel við á mun minni markaðssvæðum, t.d. Íslandi. Kannaðar verða helstu áskoranir sem sem fylgja framkvæmd samkeppnisreglna á litlum mörkuðum. Sérstaklega verður horft til reglna sem gilda um samruna fyrirtækja og reglna sem gilda um markaðsráðandi stöðu og lagt mat á hvort að gildandi samkeppnisreglur að þessu leyti séu til þess fallnar að hámarka velferð neytenda í litlum hagkerfum. Í framhaldinu er litið til réttarframkvæmdar bæði í stærri og minni ríkjum, í þeim tilgangi að komast að því hvort og þá hvers konar tillit þurfi að taka til stærðar hagkerfisins og markaðsaðstæðna sem einkenna lítil hagkerfi, við beitingu samkeppnisreglna. Að lokum er dregin saman niðurstaða um hvað það er sem skiptir mestu máli hvað varðar mótun samkeppnisstefnu í litlum hagkerfum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Alfreð Andri Alfreðsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/36023
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/36023