Back to results

Reykjavík University

Rannsókn og saksókn mansals samkvæmt 227. gr. a. alm. hgl.

Abstract

dc:description.abstract

Samkvæmt 227. gr. a. hgl. er refsing lögð við mansali. Skilgreining mansals samkvæmt hegningarlögum byggir á alþjóðlegri skilgreiningu Palermó-bókunarinnar og Evrópuráðssamningi um aðgerðir gegn mansali. Ísland hefur gengist undir skuldbindingar samkvæmt framangreindum sáttmálum til þess að tryggja aðgerðir í baráttunni gegn mansali. Í því felst m.a. að tryggja að gerendur í mansalsmálum verði sóttir til saka fyrir dómstólum. Íslensk stjórnvöld hafa sett sér aðgerðaráætlanir í gegnum árin til þess að tryggja þann árangur. Af dómaframkvæmd leiðir að hann hefur hingað til ekki verið mikill, þar sem aðeins einu sinni hefur verið sakfellt fyrir mansal hér á landi með Hrd. nr. 224/2010. Í þessari ritgerð er leitast við að varpa ljósi á hindranir sem standa í veg fyrir að rannsókn máls hjá lögreglu leiði til ákæru og dóms. Í því skyni er ítarlega farið yfir verknaðaraðferðir 227. gr. a. hgl. Við túlkun og skýringu ákvæðisins var hliðsjón höfð af skýringu mansalsákvæðis alþjóðlegra sáttmála sem ákvæðið sækir stoð í. Til þess að háttsemi falli undir 227. gr. a. hgl. þarf hún að uppfylla þrjá mismunandi þætti, þ.e. verknað, verknaðaraðferð og tilgang verknaðar. Af íslenskri dómaframkvæmd leiðir að það sé einkum verknaðaraðferðarþátturinn sem erfiðast er að sanna. Farið er yfir aðgerðaráætlanir stjórnvalda í tengslum við mansal ásamt helstu úttektum alþjóðlegra stofnana um stöðu málaflokksins á Íslandi. Fjallað er um helstu reglur sem gilda um sönnun í sakamálum ásamt því að taka til skoðunar erlenda dómaframkvæmd í mansalsmálum til þess að varpa ljósi á hvernig dómstólar annarra ríkja hafa tæklað algengar hindranir í tengslum við sönnunarfærslu í málunum. Að lokum er staða mansalsmála í Norðurlöndum tekin til skoðunar. Af umfjölluninni leiðir að fæstir dómar hafa fallið hér á landi í tengslum við mansal. Dregin er sú ályktun að það sé á grundvelli að skorts á sérfræðiþekkingu og nægrar áherslu innan íslensku lögreglunnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sonja Símonardóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36020
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36020

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sonja Símonardóttir 1995-. Rannsókn og saksókn mansals samkvæmt 227. gr. a. alm. hgl.. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36020