Back to results

Reykjavík University

Kærur og kvartanir á hendur lögreglu : rannsókn á málum Eftirlitsnefndar með störfum lögreglu

Abstract

dc:description.abstract

Markmiðið er að kanna umfang og eðli mála sem borist hafa nefnd um eftirlit með lögreglu, sem stofnuð var með lögum nr. 62/2016. Farið verður í forsögu og aðdraganda að stofnun nefndarinnar sem hóf störf þann 1. janúar 2017. Þá verður hlutverki nefndarinnar gerð skil. Til þess að varpa skýru ljósi á umfang og eðli mála nefndarinnar voru öll mál hennar skoðuð og greind. Farið verður yfir þróun nefndarinnar á þeim tæpu þremur árum sem hún hefur starfað. Til samanburðar er litið til hinna Norðurlandanna og fjallað um gildandi fyrirkomulag í hverju landi fyrir sig, varðandi meðferð kæra og kvartana á hendur lögreglu. Jafnframt verður farið yfir kynjahlutföll þeirra sem sent hafa erindi til nefndarinnar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að þörf er á sérstökum vettvangi fyrir móttöku kæra og kvartana á hendur lögreglu, líkt og nefnd um eftirlit með lögreglu er. Aukning hefur verið á fjölda mála sem berst með hverju starfsári nefndarinnar og eru þau mörg hver ólík í eðli sínu. Allt frá því að varða minniháttar kvörtun yfir í það að innihalda alvarlegar ásakanir í garð starfsmanna lögreglu. Þá má sjá ákveðna þróun hjá nefndinni varðandi aukna greiningu á erindum og að hún hefur á sama tíma í auknu mæli ekki talið tilefni til að senda erindi til meðferðar. Ljóst er að nefndin hefur unnið þarft verk og augljóslega verið sá vettvangur sem borgaranum hefur hingað til skort, til að koma á framfæri kvörtunum sínum vegna refsiverðrar háttsemi eða ámælisverðrar starfsaðferðar starfsmanns lögreglu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ellen Ósk Eiríksdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34735
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34735

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ellen Ósk Eiríksdóttir 1990-. Kærur og kvartanir á hendur lögreglu : rannsókn á málum Eftirlitsnefndar með störfum lögreglu. 2020. http://hdl.handle.net/1946/34735