Abstract
dc:description.abstractLoftlagsvandamál eru áhyggjuefni í heiminum í dag, losun hefur aukist gríðarlega og skuldinni er oft að hluta til skellt á iðnaðarfyrirtæki. Mikilvægt er að fyrirtæki reyni að sýna frumkvæði og vinna sig í átt að sjálfbærri þróun til að bregðast við vandamálunum. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Ölgerðina Egill Skallagrímsson. Ölgerðin hefur stigið stór skref í umhverfismálum undanfarin ár og leitar leiða til að gera enn betur. Í þessu verkefni er gert arðsemismat og áhættugreining á fjárfestingu á CO2 söfnunarkerfi fyrir Ölgerðina. Þetta kerfi tekur koltvísýring, sem myndast við gerjun bjórs, hreinsar hann og safnar honum í safntank þar sem hann er tilbúinn til endurnotkunar í framleiðslu. Í verkefninu eru smíðuð tvö líkön. Líkan sem reiknar út fræðilegt magn af koltvísýringi sem myndast við gerjun bjórs út frá söluspá Ölgerðarinnar og arðsemislíkan. Niðurstöður úr fyrra líkaninu eru notaðar í seinna líkanið sem metur hvort fjárfestingin sé arðbær eða ekki. Áhættumat er gert á verkefninu með næmnigreiningu og hermun. Niðurstöður líkana leiddu í ljós að verkefnið yrði arðbært miðað við gefnar forsendur. Þó er talsverð áhætta í verkefninu þar sem endurgreiðslutíminn er langur og næmasta breytan er söluspá sem er áhættusamt þar sem erfitt er að spá fyrir um eftirspurn langt fram í tímann. Lykilorð: Arðsemismat, Arðsemi, Áhættugreining, Sjálfbær þróun
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Júlía Eyfjörð Jónsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/33994
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/33994