Back to results

Reykjavík University

The way of the unarmed warrior : anthropometry, physical and psychological parameters of Icelandic male mixed martial arts and Brazilian jiu-jitsu fighters

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknar: (i) Að greina líkamsbyggingu, hreysti og sálfræðilega færni hjá íslenskum bardagamönnum af mismunandi getustigi (ii) Að lýsa líkamshreysti og sálfræðilegri færni hjá íslenska keppendur í blönduðum baragaíþróttum og brasilísku jiu-jitsu glímu. Aðferð: Þrjátíu og þremur keppendum (aldur 25,9 ± 4,7 ár) var skipt í hópa útfrá bardagaíþrótt (Brasilísku jiu-jitsu og blönduðum bardagaíþróttum) og getustigi (keppnistig og beltagráðu). Framkvæmdar voru á mælingar á líkamsbyggingu, hreysti og sálfræðilegri færni. Mælt var: Hæð, þyngd, líkamsþyngdarstuðull, hámarksþyngd í sexhyrningsstangar réttstöðulyftu, gripstyrkur, stökkhæð ,armbeygjur, 500 metra róður á tíma, liðleiki, og hagkvæmni hreyfinga. Spurningarlistar um sálfræðilega færni, kvíða í íþróttum, andlega hörku í íþróttum og árangurshneigð í íþróttum voru lagðir fyrir. Niðurstöður: Framkvæmd var tölfræðigreining með óháðu t-prófi. Munur var á líkamsbyggingu, líkamlegri hreysti og sálfræðilegri færni milli hópa. Keppendur í blönduðum bardagaíþróttum voru liðugri í öxlum, nýttu sjónmyndir meira á æfingum, höfðu meira sjálfstraust og voru með sjálfmiðaðri markmið heldur en glímumennirnir. Afreksmenn voru hávaxnari, með meiri gripstyrk, notuðu tilfinningastjórnun meira á æfingum, sýndu meiri andlega hörku og minni kvíða en áhugamenn. Áhugamenn nýttu sér markmiðasetningu og sjónmyndun meira á æfingum en afreksmenn Samantekt: Keppendur í Brasilísku jiu-jitsu og blönduðum bardagaíþróttum hafa svipaða líkamseiginleika að axlaliðleika að undaskildum. Munur var á sálfræðilegri færni milli hópanna. Afreksmenn voru hávaxnari, með meiri gripstyrk, andlega hörku og minni kvíða en áhugamenn. Leitarorð: Blandaðar bardagaíþróttir – Brasilískt jiu-jitsu – Bardagaíþróttir – líkamleg hreysti – Andleg harka

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Davíð Már Sigurðsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 11

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33621
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33621

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Davíð Már Sigurðsson 1991-. The way of the unarmed warrior : anthropometry, physical and psychological parameters of Icelandic male mixed martial arts and Brazilian jiu-jitsu fighters. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33621