Back to results

Reykjavík University

Skaðabætur vegna opinberra innkaupa

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar er skaðabætur vegna opinberra innkaupa. Í 119. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er fjallað um skilyrði þess að kaupandi verði dæmdur skaðabótaskyldur vegna brota við opinber innkaup. Annað af tveimur meginmarkmiðum þessar ritgerðar er að skýra inntak gildandi bótaákvæða laganna með hliðsjón af fræðiskrifum, úrskurðarframkvæmd kærunefndar útboðsmála og dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands. Hitt markmið ritgerðarinnar er að taka til skoðunar hvort skaðabætur vegna brota á reglum um opinber innkaup sé virkt réttarúrræði hér á landi, eða hvort þörf sé á úrbótum. Megináhersla verður lögð á íslenskan rétt en vegna skyldleika íslenskra laga um opinber innkaup við Evrópurétt verður ekki hjá því komist að gera stuttlega grein fyrir þróun mála í Evrópu. Meginniðurstöður ritgerðarinnar eru þær að um virkt réttarúrræði sé að ræða en langur málsmeðferðartími fyrir dómstólum er til þess fallinn að takmarka aðgengi að úrræðinu. Það er vert að líta til réttarþróunar í Danmörku, ásamt því að leita leiða til að draga enn frekar úr líkum á dómsmálum af þessari tegund. Að mati höfundar má einnig færa rök fyrir því að dómaframkvæmd Hæstaréttar er lýtur að skaðabótum og ákvörðun dráttarvaxta vegna brota við opinber innkaup er enn ábótavant. Með hliðsjón af þeim ríku hagsmunum málsaðila sem geta verið í húfi varðandi úrlausn dómstóla um réttindi þeirra og skyldur verður að koma þessum málum í fastari skorður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Narfi Magnússon 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/33146
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/33146

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Narfi Magnússon 1993-. Skaðabætur vegna opinberra innkaupa. 2019. http://hdl.handle.net/1946/33146