Back to results

Reykjavík University

Notendamiðuð geðheilbrigðisþjónusta : stefnumörkun og útfærsla

Abstract

dc:description.abstract

Fjallað er um geðheilbrigðisþjónustuna á Íslandi út frá skilgreiningu á notendamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu. Tekin voru viðtöl við starfsfólk og notendur geðheilbrigðisþjónustunnar. Svör þeirra voru skoðuð í samhengi við gildandi opinbera stefnumörkun í geðheilbrigðismálum og líkan John P. Kotters um skilvirka breytingastjórnun. Niðurstaða rannsóknarinnar er að skipta megi notendamiðaðaðri geðheilbrigðisþjónustu í tvö stig, þar sem fyrsta stig gengur út á að aðlaga útfærslu þjónustunnar að þörfum notenda en annað stig gengur út á að valdefla notendur og styðja þá til bata samkvæmt batalíkaninu. Gildandi stefnumörkun á Íslandi um geðheilbrigðismál virðist ekki nægilega markviss með tilliti til notendamiðaðrar geðheilbrigðisþjónustu og þá sérstaklega þegar horft er til annars stigs. Skýrari sýn á breytingar er nauðsynleg ef taka á upp notendamiðaðar áherslur innan íslensku geðheilbrigðisþjónustunnar á skilvirkan hátt. Líta megi á íslenska stefnumörkun um krabbameinsmeðferð sem góða fyrirmynd að því hvernig innleiða megi slíkar áherslur í geðheilbrigðisþjónustunni með markvissum hætti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Auðar Svansson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31311
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31311

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Auðar Svansson 1979-. Notendamiðuð geðheilbrigðisþjónusta : stefnumörkun og útfærsla. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31311