Back to results

Reykjavík University

Samstæður félaga sem ein skattaleg eining : Hin lagalega aðferð skv. 4. mgr. 55. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003 um nýtingu taps milli félaga

Abstract

dc:description.abstract

Samstæður félaga eiga þess kost að vera samsköttuð sem ein skattaleg eining uppfylli þær skilyrði 55. greinar laga um tekjuskatt nr. 90/2003 um samsköttun. Í ritgerð þessari var leitast við að gera grein fyrir skilyrðum og aðferðum við samsköttun félagasamstæða á grundvelli 55. gr. tskl. Lögð var áhersla á skilyrði fyrir nýtingu yfirfærslu taps og þá aðferðafræði sem beitt er hverju sinni. Uppgjörsaðferðir skattskila vegna yfirfærslu taps innan samstæðu hafa þróast á mismunandi vegu hin síðari ár. Það hefur svo leitt til þess að félög og samstæður í sambærilegum rekstri hafa verið gerðar upp á mismunandi hátt. Leitaðist höfundur eftir því að draga fram hina lagalegu aðferð 4. mgr. 55. gr. tskl. með tilliti til tilgangs og markmiðs greinarinnar í heild. Litið var til lögskýringargagna, réttarframkvæmdar og annarra fræðigreina. Jafnframt voru tekin viðtöl við sérfræðinga með það að markmiði að leiða fram helstu sjónarmið eftirlitsaðila og atvinnulífsins. Farið var yfir skilgreiningu á hugtakinu samstæða og gerð stuttleg skil á hugtakinu rekstrarkostnaður og yfirfæranlegu tapi félaga. Þá var farið yfir almenn skilyrði skil fyrir heimild til samsköttunar. Sérstök áhersla var lögð á skilyrði 4. mgr. 55. gr. og þá aðferðafræði sem nefnd var í dæmaskyni í lögskýringagögnum um hvernig ætti að útdeila tapi milli félaga í samsköttun. Skoðað var samanburður á öðrum ákvæðum sem heimila nýtingu taps á milli félaga með áherslu á markmið og tilgang löggjafans. Sérstaklega voru gerð skil á meðferð vaxtakostnaðar sem rekstrarkostnað. Að lokum var fjallað um á nýleg frumvörp sem lögð voru fram um breytingar á 55. gr. tskl. um yfirfærslu taps og samsköttun félaga með fastar starfstöðvar hér á landi. Helsta niðurstaða ritgerðar þessarar er að ákvæði 4. mgr. 55. gr. tskl. um tapsnýtingu milli félaga sé ábótavant. Setja þurfi skýrari reglur um hvernig skuli fara með yfirfæranlegt tap innan samstæðu með það að leiðarljósi að styðja við markmið og tilgang ákvæðisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Ólöf Viðarsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31299
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31299

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Ólöf Viðarsdóttir 1983-. Samstæður félaga sem ein skattaleg eining : Hin lagalega aðferð skv. 4. mgr. 55. gr. tekjuskattslaga nr. 90/2003 um nýtingu taps milli félaga. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31299