Back to results

Reykjavík University

Staða og tækifæri Emmessís

Abstract

dc:description.abstract

Emmessís var í upphafi rekið sem deild innan Mjólkursamsölunnar. Árið 1994 var það skráð í fyrirtækjaskrá og rekið sem sjálfstætt félag, en þó að fullu í eigu MS. Árið 2007 var það selt til einkaaðila og hefur síðan verið alveg óháð sínum fyrri eigendum. Framan af voru tveir aðilar á markaði Emmessís og Kjörís, og lítill sem enginn influtningur. Lengs af leiddi Emmessís á markaðnum með um og yfir 60% og Kjörís með um 40%. Með árunum hafa hlutföllin snúist við ásamt því að innfluttur ís hefur verið að aukast jafnt og þétt og var árið 2017 rúm 10% af heildarmarkaði. Emmessís er frábrugðið Kjörís að því leyti að það framleiðir rjómaís og er því megin uppistaðan mjólkurafurðir á meðan Kjörís framleiðir jurtaís. Framleiðslufyrirtæki á Íslandi hafa mörg hver orðið undir í samkeppni við erlend fyrirtæki vegna versnandi samkeppnishæfni, meðal annars vegna launahækkunar og styrkingar krónunnar og aukins innflutnings. Nýlegt dæmi er sú ákvörðun Prentsmiðjunnar Odda að loka starfsemi Plastprents og Kassagerðarinnar. Í þessari ritgerð verður skoðuð stefna og samkeppnishæfni Emmessís með því að nota þau verkfæri sem tengjast fræðunum. Leitast er við að greina samkeppnishæfni Emmessís með því að greina markaðinn, helstu auðlindir Emmessís og samkeppnina. Að lokum verða lagðar fram tillögur um hvernig Emmessís geti nýtt auðlindir sínar enn betur til að efla samkeppnisforskot og styrkja stöðu sína á markaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gyða Dan Johansen 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/30794
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/30794

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gyða Dan Johansen 1973-. Staða og tækifæri Emmessís. 2018. http://hdl.handle.net/1946/30794