Abstract
dc:description.abstractKerfisbundin greining gagna (Systematic Mapping Studies) er aðferðafræði sem er notuð fyrir flokkun í Hugbúnaðarverkfræði og Lyfjarannsóknum. Þetta er góð aðferð til að meta hversu oft efni er gefið út í ákveðinni rannsóknargrein. Aðferðin er vel skilgreint ferli sem leiðir mann skref fyrir skref í gegn um flokkun á efninu á skipulagðann hátt. Þessi rannsóknargrein er forathugun fyrir frekari rannsókn um Lean í byggingariðnaði (Lean Construction). Gögnin sem unnið er með eru rannsóknargreinar sem hafa verið gefnar út í tengslum við árlega ráðstefnni alþjóðlegra samtaka áhugamanna um Lean í byggingariðnaði (IGLC). Ráðstefnan hefur verið haldin síðast liðin 24 ár. Allt frá því að fyrsta ráðstefnan var haldin árið 1993 þá hefur verið gefið út mikið magn greina um Lean í byggingariðnaði, sóun, stjórnunaraðferðir, hönnun og fleira. Umræðan hefur þróast og ný sjónarhorn hafa haft áhrif á hana. Þar má nefna sjálfbærni, umhverfis mál og fleira. Niðurstöður rannsóknarinnar eru yfirlit yfir efnisumfjöllun rannsóknargreina sem hafa verið gefnar út árin 2015 og 2016 um Lean í byggingariðnaði út frá þremur mismunandi víddum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þorsteinn Guðbjörnsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28991
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28991