Back to results

Reykjavík University

Lausnamiðuð styrktarþjálfun einstaklinga með Cerebral Palsy (heilalömun)

Abstract

dc:description.abstract

Mannslíkaminn er byggður fyrir líkamlega virkni og nýtur hann góðs af hreyfingu. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði heilsu og vellíðan. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á að hreyfing sé góð fyrir líkamann, hvort sem um sé að ræða almenna hreyfingu, styrktar- eða þolþjálfun. Í þessu verkefni verður fjallað um styrktarþjálfun einstaklinga með cerebral palsy, og hvernig má útfæra stignun af ýmsum styrktaræfingum sem hentar þeim. Tveir einstaklingar með cerebral palsy voru fengnir til aðstoðar, annar með helftarlömun (hemiplegia) og hinn fjórlömun (quadriplegia). Áherslan var lögð á að styrkja vöðvahópa í hnjám, mjöðmum, mið- og efribúk, styrktaræfingarnar voru valdar út frá því. Þær styrktaræfingar sem urðu fyrir valinu voru hnébeygja, mjaðmarétta, upphífingar, armbeygjur og búk æfingar. Því næst var farið í að finna stignun sem hentaði hvorum aðila fyrir sig. Einstaklingarnir framkvæmdu allt að fimm stignunar útfærslur af hverri æfingu. Unnið var úr myndböndum og greint frá því hvernig einstaklingarnir framkvæmdu hverja stignunar æfingu fyrir sig, hvað mátti betur fara og hvaða stignunar æfingar hentuðu hvorum einstaklingi fyrir sig. Báðir aðilar framkvæmdu æfingarnar eftir bestu getu, ýmsar útfærslur reyndust þeim mjög krefjandi en heilt yfir gengu æfingarnar nokkuð vel.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hermann Þór Haraldsson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28866
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28866

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hermann Þór Haraldsson 1993-. Lausnamiðuð styrktarþjálfun einstaklinga með Cerebral Palsy (heilalömun). 2017. http://hdl.handle.net/1946/28866