Back to results

Reykjavík University

Persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins nr. 2016/679 : áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins sem kemur til framkvæmda á árinu 2018. Markmið umfjöllunarinnar er að greina þau áhrif sem helstu nýmæli reglugerðarinnar koma til með að hafa á lítil og meðalstór fyrirtæki. Meðferð persónuupplýsinga spilar sífellt stærra hlutverk í starfsemi fyrirtækja á tækniöld. Auk þess hefur fjölgað gríðarlega í hópi fyrirtækja á borð við samfélagsmiðla og skýjaþjónustur, þar sem meginþungi starfseminnar snýr beinlínis að meðferð slíkra upplýsinga þvert á öll landamæri. Er því óhætt að segja að þörfin á uppfærðri og samræmdri löggjöf á sviðinu hafi verið brýn og er reglugerðinni ætlað að svara því kalli. Lítil og meðalstór fyrirtæki gegna mikilvægu hlutverki í hagkerfi sambandsins og segja má að þau séu burðarás evrópsks viðskiptalífs. Þannig fellur gríðarstór hluti fyrirtækja innan sambandsins í þann flokk. Enn fremur útvega þau u.þ.b. tvö af hverjum þremur störfum innan einkageirans í sambandinu auk þess sem meira en helmingur þeirrar heildarvirðisaukningar sem skapast hjá fyrirtækjum innan þess má rekja til slíkra fyrirtækja. Liggur nauðsyn þess að greina áhrif hinnar nýju reglugerðar á þessa aðila því í augum uppi. Ljóst er að öryggi persónuupplýsinga mun aukast til muna með tilkomu reglugerðarinnar. Að sama skapi krefjast ákvæði hennar hins vegar umfangsmikilla aðgerða af hálfu þeirra fyrirtækja sem með upplýsingarnar vinna. Auk þess að stuðla að bættu öryggi er markmið reglugerðarinnar jafnframt að samræma framkvæmd innan sambandsins og uppfæra og einfalda álagðar byrðar í takt við tímann. Með þetta fyrir augum virðast undantekningar frá skyldum á grundvelli stærðar á undanhaldi og er frekar litið til umfangs og eðlis vinnslunnar hverju sinni. Er því ljóst að lítil og meðalstór fyrirtæki verða í eldlínunni ekki síður en önnur og þurfa að leggja bæði tíma og vinnu í að undirbúa sig fyrir það sem koma skal.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rósa Kristinsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28332
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28332

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rósa Kristinsdóttir 1993-. Persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins nr. 2016/679 : áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28332