Back to results

Reykjavík University

Frestir til að tilkynna um galla í neytenda- og þjónustukaupum : rannsókn á álitum kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa : hvaða söluhlutir falla undir sérregluna um fimm ára frest til að tilkynna um galla samkvæmt 2. mgr. 27. gr. neytendakaupalaga

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er á sviði neytendaréttar og er viðfangsefni hennar að skoða fresti sem neytendur hafa til að tilkynna um galla samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 og lögum um þjónustukaup nr. 42/2000. Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka álit kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og gera grein fyrir því hvaða söluhlutir það eru sem falla undir sérregluna um fimm ára frest til að tilkynna um galla samkvæmt 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Þessa sérreglu er einungis að finna í lögum um neytendakaup nkpl. en ekki í lögum um þjónustukaup. Í upphafi ritgerðar er að finna umfjöllun um þróun og gildissvið laganna og um úrlausn ágreinings í neytenda- og þjónustukaupum. Þá er ítarleg umfjöllun um gallahugtak laganna og um fresti til að tilkynna um galla. Í lokaköflum hennar er að finna sérstaka umfjöllun um sérregluna og ítarlega umfjöllun um niðurstöður rannsóknarinnar á álitum kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa og niðurstaða hennar gerð kunn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ósk Kristjánsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28331
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28331

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ósk Kristjánsdóttir 1986-. Frestir til að tilkynna um galla í neytenda- og þjónustukaupum : rannsókn á álitum kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa : hvaða söluhlutir falla undir sérregluna um fimm ára frest til að tilkynna um galla samkvæmt 2. mgr. 27. gr. neytendakaupalaga. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28331