Reykjavík University
Mörk fjárdráttar og umboðssvika : með áherslu á ráðstöfun fjármuna
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni ritgerðarinnar er könnun á mörkum fjárdráttarákvæðis 247. gr. og umboðssvikaákvæðis 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (hgl.) með áherslu á ráðstöfun fjármuna og fjáröflun. Jafnframt er greint tilvikin þar sem efnissvið ákvæðanna fer saman. Til að greina mörkin eru borin saman efniseinkenni brotanna og verknaðarþættir fyrrgreindra ákvæða. Með þeim hætti er leitast við að svara hvers konar háttsemi felur í sér fjárdrátt eða umboðssvik þegar um ræðir sambærilega háttsemi. Til hliðsjónar er höfð túlkun á dönskum og norskum rétti. Ekki er unnt að ráða skýr mörk fram úr dómaframkvæmd hvað varðar fjárdrátt og umboðssvik. Almennt má segja að verknaðarandlag umboðssvika nái yfir andlag fjárdráttar en í þeim tilvikum getur efnissvið ákvæðanna farið saman. Helstu sameiginlegu verknaðaraðferðir fjárdráttar og umboðssvika eru millifærsla fjármuna af bankareikningi sem gerandi hefur umráð yfir eða notkun greiðslukorts umfram heimildir. Greinarmunur er eftir því hvort um er að ræða notkun kreditkorts eða notkun debetkorts. Þegar háttsemi felur í sér ólögmæta millifærslu fjármuna og notkun debetkorts má segja að yfirleitt fari efnissvið ákvæðanna saman en fer það eftir eðli úttektarreiknings og í eigu hvers móttökureikningur er. Í ákveðnum tilvikum eru mörk fjárdráttar og umboðssvika þau að fjárdráttur felst í tileinkun fjármuna ótengt starfi viðkomandi en umboðssvik felur í sér ráðstöfunin sem fer gegn hagsmunum eiganda fjármuna í tengslum við starf. Mörk ákvæðanna eru jafnframt þegar yfirfærsla fjármuna leiðir til fjárhagsskuldbindingar verknaðarþola en slíkt felur almennt í sér umboðssvik. Þau tilvik eru lánveiting eða umfangsmikil og flókin fjármálaráðstöfun sem fer umfram heimildir, tiltekin kreditkortanotkun sem leiðir til greiðsluskuldbindingar annars aðila eða yfirdráttur bankareiknings. Verknaðurinn felur þá í sér að verknaðarþoli verður bundinn til að greiða tilteknar fjárhæðir. Að auki má nefna þegar verknaðarandlag felst óhreyfanlegum verðmætum. Ætla má að eðli verknaðarandlags og vörsluskilyrði fjárdráttar skýri mörkin.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Lárusdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28313
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28313