Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að gera grein fyrir karlmönnum sem brotaþolum kynferðisofbeldis. Reynt verður að svara þeirri spurningu af hverju þeir leiti sér síður aðstoðar og eru ólíklegri til að kæra kynferðisbrot til lögreglu en kvenkyns brotaþolar. Gerð verður grein fyrir þróun löggjafar og refsinga fyrir kynferðisbrot og þau breytingarlög á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga sem hafa haft veigamiklar breytingar í för með sér fyrir karlkyns þolendur kynferðisofbeldis. Í kjölfarið verður fjallað um karlmenn sem þolendur kynferðisbrota, úrræði sem standa þeim til boða og rannsóknir sem gerðar hafa verið á einkennum karlkyns brotaþolum. Þá verður einnig fjallað um sönnunarmat dómstóla. Í ritgerðinni eru greindir dómar sem fallið hafa hér á landi þar sem karlmenn eru brotaþolar kynferðisofbeldis og tölfræði um meðferð þeirra mála hjá ríkissaksóknara til þess að leggja mat á hvort marktækur munur sé á meðferð kynferðisbrotamála hjá ríkissaksóknara og dómstólum eftir því hvert kyn brotaþola er. Helstu niðurstöður eru þær að orsök þess að fáir karlkyns þolendur kynferðisofbeldis leita sér aðstoðar og kæra kynferðisafbrot til lögreglu á rætur sínar að rekja til ranghugmynda samfélagsins um kynferðisofbeldi og karlmennsku. Af samanburði á tölfræði má greina að karlmenn eru allt að 10% þeirra sem kært hafa nauðgun til lögreglu á árunum 2011-2015. Ekki reynist hægt að fullyrða að kyn brotaþola hafi almennt áhrif á meðferð mála fyrir dómstólum. Hátt hlutfall karlkyns brotaþola í blygðunarsemisbrotum vekur athygli en 30% brotaþola eru karlkyns og greina má marktækan mun á meðferð mála eftir kyni brotaþola er varða 209. gr. hgl. hjá ríkisaksóknara.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hafliði Halldórsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28307
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28307