Back to results

Reykjavík University

Áhrif evrópskra samkeppnisreglna á nytjaleyfissamninga fyrir tækni : stefna og þróun innan Evrópusambandsins

Abstract

dc:description.abstract

Síðastliðinn áratug hefur markaðshagkerfi heimsins tekið miklum breytingum og hagnýting á nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari. Samningar um nytjaleyfi fyrir tækni eru mikilvægur þáttur í hagnýtingu á nýsköpun og hefur því vægi slíkra samninga að sama skapi aukist. Markmið ritgerðarinnar er að skoða þau áhrif sem evrópskar samkeppnisreglur hafa á nytjaleyfissamninga fyrir tækni og þannig er leitast við að svara því í hvaða tilfellum nytjaleyfissamningar fyrir tækni kunna að brjóta gegn 1. mgr. 101. gr. TFEU. Umfjöllun ritgerðarinnar er skipt upp með þeim hætti, að fyrst verður farið yfir þróun innri markaðs Evrópusambandsins, evrópsks hugverkaréttar og samkeppnisréttar. Í kjölfarið verður fjallað um markmið og tilgang nytjaleyfissamninga, ásamt sérstakri umfjöllun um eiginleika nytjaleyfissamninga fyrir tækni. Þar á eftir verður fjallað um evrópskar samkeppnisreglur sem gilda um samninga milli fyrirtækja, með áherslu á 101. gr. TFEU, sem ætlað er að koma í veg fyrir auðhringjamyndun á innri markaði Evrópusambandsins. Að lokum verða tengsl milli evrópskra samkeppnisreglna og nytjaleyfissamninga fyrir tækni í framkvæmd skoðuð nánar. Í stuttu máli er það niðurstaða höfundar að sá þáttur sem einna helst hafi haft áhrif á gildi nytjaleyfissamninga fyrir tækni, sé sú hópundanþága sem þeim hefur verið veitt á grundvelli reglugerðar nr. 316/2014. Nytjaleyfissamningar fyrir tækni eru taldir þess eðlis, að þó þeir ættu alla jafna að teljast samkeppnishamlandi, þá geti það verið réttlæt á þeim grundvelli að þeir stuðli að efnahagslegum framförum. Innihaldi nytjaleyfissamningar fyrir tækni hins vegar tilteknar alvarlegar takmarkanir skal þeim ekki veitt undanþága. Þá hefur dómaframkvæmd Evrópudómstólsins einnig staðfest að samningar um nytjaleyfi fyrir tækni sem innihalda algjöran svæðisbundinn einkarétt skuli vera ógildir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arna Hrönn Ágústsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28298
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28298

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arna Hrönn Ágústsdóttir 1989-. Áhrif evrópskra samkeppnisreglna á nytjaleyfissamninga fyrir tækni : stefna og þróun innan Evrópusambandsins. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28298