Back to results

Reykjavík University

Internetið : er takmörkun á aðgengi brot á mannréttindum?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi ber heitið „Internetið - Er takmörkun á aðgengi brot á mannréttindum? Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er internetið, aðgangur að því og mikilvægi þess í nútímasamfélagi. Markmið ritgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar er ætlunin að kanna hvort að aðgangur að internetinu geti talist til mannréttinda í dag. Hins vegar verður ljósi varpað á stöðu fanga með tilliti til aðgengis að internetinu og leitast við að svara rannsóknarspurningu ritgerðarinnar; hvort sú takmörkun á internetaðgengi sem fangar búa við í lokuðum fangelsum standist tjáningar- og upplýsingafrelsisákvæði 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Niðurstöður ritgerðarinnar eru í fyrsta lagi þær að enn sem komið er getur aðgangur að interneti ekki talist mannréttindi einn og óstuddur. Þó verður að telja internetaðgengi órjúfanlegan hluta af tjáningar- og upplýsingafrelsi sem þýðir að þegar lokað er fyrir aðgengi að internetinu er sjálfkrafa verið að brjóta á tjáningar-og upplýsingafrelsi manna. Þá gæti aðgangur að interneti einnig verið varinn sem hluti af öðrum mannréttindum eins og fundafrelsi, rétti til menntunar og rétti til þróunar. Í öðru lagi leiddi rannsóknarspurning ritgerðarinnar í ljós að takmörkun fanga í lokuðum fangelsum á aðgengi að interneti sem finna má í 2. mgr. 56. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, uppfyllir ekki skilyrði 3. mgr. 73. stjskr. varðandi takmarkanir á tjáningarfrelsi og brýtur þar af leiðandi í bága við tjáningar- og upplýsingafrelsisákvæði 73. gr. stjskr.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Halldór Smári Sigurðsson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26737
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26737

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Halldór Smári Sigurðsson 1988-. Internetið : er takmörkun á aðgengi brot á mannréttindum?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26737