Back to results

Reykjavík University

Religious Dresses and Symbols : are religions treated equally by the European Court of Human Rights?

Abstract

dc:description.abstract

Trúarleg tákn og klæði – kemur Mannréttindadómstóll Evrópu jafnt fram við trúarbrögð? Ritgerð þessi fjallar um trúfrelsi og réttinn til að iðka trúa. Nánar tiltekið leitast ritgerðin við að svara því hvort að Mannréttindadómstóll Evrópu komi jafnt fram við ólík trúarbrög. Í ritgerðinni er áhersla er lög á mál er varða trúarleg tákn og klæði og er samanburðurinn á milli íslam annarsvegar og kristini hins vegar. Í ritgerðinni var í fyrsta lagi farið í gegnum sögulega þróun mannréttindaverndar í heiminum með sérstaka áherslu á trúfrelsi og réttinn til að iðka trú. Í öðru lagi var inntak 9. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu sem fjallar um réttinn til trúar-, hugsunar- og samviksufrelsis skilgreint og helstu dómaframkvæmd gerð skil. Í þriðja lagi var í ritgerðinni dómarannsókn þar sem borin var saman dómaframkvæmd í málum er varða íslamska höfuðklútinn annars vegar og kristinn kross hins vegar. Í fjórða og síðasta lagi var einnig gerð grein fyrir málum er varða trúartákn og Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur tekið fyrir til samanburðar við framkvæmdina í Evrópu. Niðurstaða ritgerðarinnar varpar ljósi á mun í dómaframkvæmd er varðar íslam og íslamska höfuðklúttinn samanborið við kristni og krossinn. Kristni sem er hin hefðbundna trú meirihlutans í Evrópu nýtur töluvert sanngjarnari meðferðar í meðförum dómara Mannréttindadómstóls Evrópu, en íslam sem er trú minnihluta í Evrópu. Litið er á krossinn sem þátt í sameiginlegri sögu og hefð Evrópu og þess að hann geti verið tákn fjölbreytileika og veraldlegra gilda. Þá er krossinn ekki talin hafa trúboðunaráhrif. Hins vegar er litið á höfuðklútinn sem tákn róttækni sem sendi frá sér sterk trúboð. Þá er hann sagður fara gegn veraldlegum gildum og venjum Evrópu. Rökstuðningur Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir þessum mismun í meðferð er afar takmarkaður og má því segja að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ekki komið jafnt fram við trúarbrögð í þeim málum sem voru skoðuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Þórsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26644
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26644

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Þórsson 1991-. Religious Dresses and Symbols : are religions treated equally by the European Court of Human Rights?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26644