Reykjavík University
The three step test of international copyright law : is fair use the key to balancing interests in the digital age?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvort að þriggja þrepa prófið í alþjóðlegum höfundarétti geti verið túlkað í ljósi Bandarískra laga um ‘sanngjarna notkun’. ‘Sanngjörn notkun’ er lagahugtak sem að leyfir endurnýtingu höfundarréttarvarins efnis án leyfis frá handhafa höfundaréttar í þeim tilgangi að finna jafnvægi milli handhafa og höfunda sem endurnýta efni á ‘gerfihnattaöld’. Þriggja þrepa prófið er að finna í 2 mgr. 9.gr Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listaverka en þar segir til um að undantekningar séu leyfðar í sérstökum undantekningartilvikum sem hafa ekki áhrif á venjulega nýtingu höfundar í viðskiptalegum tilgangi eða að öðru leiti fari gegn lögmætum hagsmunum handhafa höfundarréttar. Annar kafli ritgerðarinnar setur stafræna menningu internetsins í samhengi við sögu höfundarréttar og alþjóðlegra samninga. Þriðji kafli leitast við að finna hvort að höfundarréttur sé í krísu á internetinu með tilliti til hraðra breytinga á viðskiptamódelum og áhrifa hagsmunahópa á lagasetningu auk þess að kynna sjónarmið til túlkunar áhrifa internetsins og starfrænna tóla. Fjórði kafli greinir undantekningar í alþjóðlegum höfundarétti og leitast við að skýra hvernig notkun getur rúmast innan merkingu orða þeirra. Í kaflanum er einnig framkvæmdur samanburður á því hvernig reglurnar hafa verið túlkaðar í framkvæmd, allra helst með tilliti til hugtaksins um ‘sanngjarna notkun’. Fimmti kafli kynnir hvaða eðlis sú notkun er sem að gæti átt undir högg að sækja í núverandi höfundarréttarkerfi. Sjötti kafli greinir hjálplegar hugmyndir og kenningar auk þess að kynna tegundir og umsvif framtaka á sviði leyfa sem undanskilja verk að hluta til eða öllum leiti undan höfundarétti á netinu. Í sjöunda kafla er komist að þeirri niðurstöðu að við lagasetningu sé nauðsynlegt að gæta að sveigjanleika með tilliti til hraðrar tækniþróunar og ‘sanngjarnar notkunar’ og við túlkun á alþjóðlegum reglum er hjálplegt að líta til þróunar í þessum málflokki um víðan völl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Edwald 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25525
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25525