Back to results

Reykjavík University

The three step test of international copyright law : is fair use the key to balancing interests in the digital age?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvort að þriggja þrepa prófið í alþjóðlegum höfundarétti geti verið túlkað í ljósi Bandarískra laga um ‘sanngjarna notkun’. ‘Sanngjörn notkun’ er lagahugtak sem að leyfir endurnýtingu höfundarréttarvarins efnis án leyfis frá handhafa höfundaréttar í þeim tilgangi að finna jafnvægi milli handhafa og höfunda sem endurnýta efni á ‘gerfihnattaöld’. Þriggja þrepa prófið er að finna í 2 mgr. 9.gr Bernarsáttmálans til verndar bókmenntum og listaverka en þar segir til um að undantekningar séu leyfðar í sérstökum undantekningartilvikum sem hafa ekki áhrif á venjulega nýtingu höfundar í viðskiptalegum tilgangi eða að öðru leiti fari gegn lögmætum hagsmunum handhafa höfundarréttar. Annar kafli ritgerðarinnar setur stafræna menningu internetsins í samhengi við sögu höfundarréttar og alþjóðlegra samninga. Þriðji kafli leitast við að finna hvort að höfundarréttur sé í krísu á internetinu með tilliti til hraðra breytinga á viðskiptamódelum og áhrifa hagsmunahópa á lagasetningu auk þess að kynna sjónarmið til túlkunar áhrifa internetsins og starfrænna tóla. Fjórði kafli greinir undantekningar í alþjóðlegum höfundarétti og leitast við að skýra hvernig notkun getur rúmast innan merkingu orða þeirra. Í kaflanum er einnig framkvæmdur samanburður á því hvernig reglurnar hafa verið túlkaðar í framkvæmd, allra helst með tilliti til hugtaksins um ‘sanngjarna notkun’. Fimmti kafli kynnir hvaða eðlis sú notkun er sem að gæti átt undir högg að sækja í núverandi höfundarréttarkerfi. Sjötti kafli greinir hjálplegar hugmyndir og kenningar auk þess að kynna tegundir og umsvif framtaka á sviði leyfa sem undanskilja verk að hluta til eða öllum leiti undan höfundarétti á netinu. Í sjöunda kafla er komist að þeirri niðurstöðu að við lagasetningu sé nauðsynlegt að gæta að sveigjanleika með tilliti til hraðrar tækniþróunar og ‘sanngjarnar notkunar’ og við túlkun á alþjóðlegum reglum er hjálplegt að líta til þróunar í þessum málflokki um víðan völl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Edwald 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25525
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25525

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Edwald 1991-. The three step test of international copyright law : is fair use the key to balancing interests in the digital age?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25525