Reykjavík University
Sönnun orsakatengsla í líkamstjónum: til hvers er horft við sönnun orsakatengsla milli tjónsatburðar og afleiðinga hans?
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari verða sönnun orsakatengsla í líkamstjónamálum, með áherslu á sönnun milli tjónsatburðar og afleiðinga hans, gerð skil. Lögð verður áhersla á þau atriði sem Hæstiréttur hefur litið til við þetta sönnunarmat, meðal annars á sönnunargögn. Í upphafi ritgerðar verður gerð grein fyrir þeim reglum sem gilda um sönnun í einkamálaréttarfari þar sem sönnun í líkamstjónamálum grundvallast af þeim reglum. Meginþungi ritgerðarinnar er þó dómarannsókn þar sem rannsakaðir eru allir þeir dómar sem féllu í líkamstjónamálum er varða þessa hlið orsakatengsla á tíu ára tímabili, það er frá 1. janúar 2006 – 1. janúar 2016. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á það til hvers Hæstiréttur horfir við sönnunarmat á orsakatengslum milli tjónsatburðar og afleiðinga hans og hvort líkindi séu á milli Norðurlandanna, þá einkum Noregs og Íslands, við þetta sönnunarmat. Rannsóknin leiddi í ljós að heildarmat fer fram í hverju og einu tilviki þar sem mál eru ólík í eðli sínu og því erfitt að setja fram hlutlægan mælikvarða um það á hverju skuli byggt við sönnunarmatið. Beina tengingu mátti þó sjá milli þess að því fyrr sem tjónþoli leitar læknis þeim mun líklegra er að sönnun orsakatengsla takist milli tjónsatburðar og afleiðinga hans og einnig ef fyrra heilsufar tjónþola var almennt gott. Þá auðveldar það sönnun ef hægt er að vísa í frumgögn sem staðfesta framburð tjónþola á fyrstu stigum máls. Af rannsókninni mátti sjá að Hæstiréttur hefur óbeint verið að vísa til þeirra viðmiða sem sett hafa verið fram í norskri réttarframkvæmd er varðar sönnunarmat á hálstognunaráverkum, án þess að gera að skilyrði að öll þau viðmið þurfi að vera uppfyllt. Þá verður almennt ekki séð að um mjög strangt sönnunarmat er að ræða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birna Kristín Baldvinsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25513
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25513