Back to results

Reykjavík University

Fasteignafélög á Íslandi og IAS-staðall 40: mat á fjárfestingareignum fasteignafélaga

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni eru þrjú stærstu fasteignafélögin á Íslandi tekin fyrir og borið saman hvernig mat á fjárfestingareignum þeirra fer fram. Skoðaður verður alþjóðlegi reikningsskilastaðallinn IAS 40, skýrt verður lítillega frá honum og hann svo tengdur við aðferðir fasteignafélaganna. Tekin voru viðtöl við fjármálastjóra fasteignafélaganna þriggja og fengin svör við ýmsum spurningum. Leitast er við að svara því hvort einhver munur sé á því hvernig félögin meta fjárfestingareignir sínar. Niðurstaðan er sú að lítill sem enginn munur er á því hvernig fasteignafélög meta fjárfestingareignir sínar og notast þau við svipaðar forsendur og líkön við slíkt mat. Öll félögin meta þær á gangvirði og notast við CAPM- og WACC-líkön til þess að núvirða sjóðstreymi fjárfestingareignanna. Staðallinn hefur leiðbeinandi áhrif á félögin og er ákveðin forvörn þegar kemur að mati eignanna. Þar sem fjárfestingareignir félaganna eru langstærsti liðurinn í efnahagsreikningi þeirra þarf lesandi reikningsskilanna að geta reitt sig á það að matsaðferðir og allir útreikningar að baki þeim séu áreiðanlegir og réttir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Steindórsdóttir 1992-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25401
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25401

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Steindórsdóttir 1992-. Fasteignafélög á Íslandi og IAS-staðall 40: mat á fjárfestingareignum fasteignafélaga. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25401