Back to results

Reykjavík University

Hvernig gagnast ISO 21500 verkefnastjórastaðallinn fyrirtækjum í íslenskri ferðaþjónustu?

Abstract

dc:description.abstract

Íslensk fyrirtæki nýta verkefnastjórnunarstaðla síður en fyrirtæki í þeim ríkjum sem við berum okkur helst saman við. Þetta þykir miður þar sem rannsóknir sýna að fyrirtæki sem nýta verkefnastjórnunarstaðla standa betur að vígi á samkeppnismarkaði enda hefur nýting staðlanna marga kosti í för með sér. Spurningalisti var lagður fyrir 173 fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu til að kanna notkun ISO 21500 verkefnastjórnunarstaðalsins og einnig þær verkefnastjórnunaraðferðir sem fyrirtæki í íslenskri ferðaþjónustu beita í rekstri sínum. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að fyrirtæki í ferðaþjónustu beita gjarnan verkefnastjórnunaraðferðum, sambærilegum þeim sem ISO 21500 gengur út á, þó flest þeirra þekki ekki til staðalsins. Þessi fyrirtæki myndu áreiðanlega njóta hags af því að innleiða ISO 21500 staðalinn til að tryggja að góðum vinnuháttum væri ávallt fylgt en ekki aðeins eftir hentugleika. Innleiðing staðalsins myndi einnig hafa það í för með sér að fyrirtæki myndu í auknum mæli nýta þær aðferðir verkefnastjórnunar sem helst er ábótavant í rekstri þeirra samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Ásgeirsson 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22702
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22702

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Ásgeirsson 1976-. Hvernig gagnast ISO 21500 verkefnastjórastaðallinn fyrirtækjum í íslenskri ferðaþjónustu?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22702