Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið þessa verkefnis er að kanna það hvort arðbært sé að fjárfesta í fasteign miðsvæðis í Reykjavík og í framhaldi leigja hana út til skamms tíma. Lítið virðist vera um rannsóknir á því hvort hægt sé að hafa hagnað af því að leigja út íbúðir sem gistipláss til innlendra eða erlendra aðila til skamms tíma. Höfundur varpar því fram rannsóknarspurningunni: „Er arðbært fyrir einstakling að fjárfesta með einum eða öðrum hætti í fasteign miðsvæðis í Reykjavík, og í framhaldi setja fasteignina í skammtímaleigu?”. Til þess að svara þessari rannsóknarspurningu sem best var farið í það að taka púlsinn á því hvernig skammtíma-leigumarkaðurinn stendur í dag og horfur hans í náinni framtíð. Rannsóknin einkenndist af megindlegri rannsóknarvinnu. Rannsóknin var framkvæmd með því að fara í talsverða rannsóknarvinnu og greiningu gagna úr mismunandi áttum; skýrslur frá opinberum aðilum, greiningaskýrslur frá bankastofnunum og þess háttar gögn voru einnig skoðuð. Til þess að öðlast betri innsýn á markaðinn frá sjónarhorni rekstraraðila var tekið viðtal við einstakling sem hefur langa reynslu af rekstri skammtímaleigu og einnig langtímaleigu leiguíbúða, viðtalið einkenndist af starfi hans á markaði skammtímaleiguíbúða. Að lokum var framkvæmd tilraun þar sem tekinn var samanburður á hagnaði þess að fjárfesta í íbúð til þess að leigja til skamms tíma og hagnaði þess að geyma jafna upphæð fjárfestingarinnar inn á lokuðum vaxtareikning.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þorgils Heimisson 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22616
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22616