Abstract
dc:description.abstractTilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort munur væri á líkamshreysti fjögurra og fimm ára barna, hvort kynjamunur væri á líkamshreysti barna á aldrinum 4-5 ára og hvort kynjamunur væri á líkamshreysti barna í þessum aldursflokkum. Aðferð: Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn. Þátttakendur voru 124. Þeir komu allir af fjórum leikskólum í Kópavogi. Fjöldi stráka var 52 (41,9%) og fjöldi stelpna 72 (58,1%). Af þeim voru 60 (48,4%) þátttakendur í 4 ára hópnum og 64 (51,6%) þátttakendur í 5 ára hópnum. Þátttakendur framkvæmdu fjögur líkamshreystipróf: Langstökk án atrennu, boltakast með 1 kg þyngingarbolta, 20 metra spretthlaup og sex mínútna hlaup. Við úrvinnslu gagna var notað forritið SPSS og töflur voru unnar í forritinu Excel. Niðurstöður: Fimm ára börn sýndu marktækt betri árangur en fjögurra ára börn í öllum fjórum líkamshreystiprófunum og á heildar Z stigum. Strákar sýndu marktækt betri árangur en stelpur þegar litið var á heildarúrtakið í langstökki án atrennu, boltakasti með 1 kg þyngingarbolta, í sex mínútna hlaupi og á heildar Z stigum, en ekki í 20 metra spretthlaupi. Einnig náðu strákar marktækt betri árangri í öllum prófum og á heildar Z stigum í 4 ára hópnum en hvergi var marktækur munur milli kynja í 5 ára hópnum. Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að jákvæð þróun verður á líkamshreysti barna sem er líklega tilkomin vegna þeirrar þróunar sem barn tekur út. Niðurstöður komu á óvart hvað varðar mun á milli kynja í aldursflokkunum og frekari rannsókna sem skoða stærra úrtak er þörf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Saadia Auður Dhour 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22437
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22437