Abstract
dc:description.abstractBæting ferla blóðbankans er flókið ferli. Blóð er viðkvæm vara með óvissu í bæði framboði og eftirspurn. Blóðbankastjórnun er því leit að jafnvægi milli skorts og sóunar vegna ofgnóttar. Það er nauðsynlegt fyrir heilbrigðiskerfið að til sé nóg af blóðeiningum til staðar í blóðbankanum. Áskorunin felst í því að fjöldi blóðgjafa og blóðþega eru strjálar breytur auk þess sem að blóð hefur takmarkaðan líftíma og gæðakröfur á hverja einingu strangar. Þessi rannsókn byggist á íslenska Blóðbankanum og starfssemi hans. Hann hefur sérstöðu á heimsvísu hvað varðar smæð, það er aðeins einn miðlægur lager og vinnslustöð þaðan sem allar einingar eru sendar frá. Til að rýna í birgðastýringu Blóðbankans og leita að bættri nýtingu kerfisins var strjált hermilíkan hannað. Til þess að bæta skilning á aðfangakeðjunni var aðhvarfsgreining notuð til að skoða hvort hægt væri að hafa áhrif á framboð blóðs og hversu breytilegt það væri. Með því að auka skilning á framboði blóðsins aukast líkur á því að hanna vel heppnuð tilrauna hermilíkön. Áhættugreining var einnig gerð til að auka líkur á viðeigandi tilraunalíkönum. Það getur reynst kostnaðarsamt að hafa óþarfar einingar í kerfinu en það er þó ljóst að mikilvægara er að verða ekki fyrir skorti. Það var því nauðsynlegt að hanna líkönin vel í leit að bætingu kerfisins. Þrátt fyrir að ná ekki að sannreyna grunnlíkanið sýndu niðurstöður að með því að stjórna framboði á blóði eftir breytilegri eftirspurn árstíða var hægt að bæta birgðakerfi Blóðbankans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elísabet Guðbjörnsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 11Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22336
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22336