Reykjavík University
Tilkynningarskylda heilbrigðisstarfsmanna um óvænt atvik við heilbrigðisþjónustu
Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að svara þeirri rannsóknarspurningu hvort breyta eigi tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsmanna um óvænt atvik við heilbrigðisþjónustu. Nýleg ákæra ríkissaksóknara á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi á spítalanum fyrir manndráp af gáleysi vegna mistaka hefur verið gagnrýnd af heilbrigðisstarfsmönnum, en þeir telja að hún muni valda því að starfsmenn verði tregari til, eða hætti jafnvel, að skrá og tilkynna um óvænt atvik. Slíkt myndi vinna gegn gæðastefnu heilbrigðisþjónustunnar, sem felur í sér að læra af orsökum atvika og þannig tryggja öryggi sjúklinga. Ákæran gefur því tilefni til umhugsunar um hvernig best sé að taka á óvæntum atvikum og hvort breytinga sé þörf á núverandi tilkynningarfyrirkomulagi. Umfjöllun ritgerðarinnar beinist í fyrsta lagi að þeim lagaákvæðum sem varða tilkynningarskyldu heilbrigðisstarfsmanna gagnvart yfirvöldum og framkvæmd skyldunnar, en lagaákvæðin er að finna í lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 og í lögum um dánarvottorð, krufningar o.fl. nr. 61/1998. Í öðru lagi verður skoðað hvernig tilkynningarskyldan og framkvæmd hennar er annars staðar á Norðurlöndunum, einkum í Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Í þriðja lagi verður tilkynningarskyldan í þessum löndum borin saman og skoðað hvort sérstakir vankantar séu á íslenska fyrirkomulaginu þegar litið er til hinna landanna. Af þessum samanburði telur höfundur ljóst að breyta þurfi tilkynningarskyldunni til landlæknis. Því til rökstuðnings er bent á nokkur atriði varðandi tilkynningarskyldu hinna norrænu landanna sem ekki er að finna í íslenskum lögum. Höfundur telur á hinn bóginn ekki tilefni til að breyta tilkynningarskyldunni til lögreglu. Í ritgerðinni er einnig gerð grein fyrir lagaákvæðum í norrænum rétti sem varða uppljóstranir heilbrigðisstarfsmanna og leiðbeiningar um samráð yfirvalda vegna refsimála gegn heilbrigðisstarfsmönnum, en höfundur leggur til að taka eigi sams konar lagaákvæði upp hér á landi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Birkir Björnsson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22267
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22267