Back to results

Reykjavík University

Feasibility studies in construction projects in Iceland

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð felur í sér rannsókn sem byggir á annarri nýbirtri rannsókn um hagkvæmnisathuganir í opinberum framkvæmdum á Íslandi. Fyrri rannsóknin byggði á þeirri staðreynd að fjárfestingarákvarðanir í tengslum við opinberar framkvæmdir á Íslandi hafa oft á tíðum verið umdeildar og ekki hefur verið ljóst hvernig forgangsröðun og val á verkefnum hefur farið fram. Lög um skipan opinberra framkvæmda (no. 84/2001) gera kröfur um könnun og samanburð á þeim valkostum sem til greina koma við lausn þeirra þarfa sem framkvæmdinni er ætlað að fullnægja áður en sótt er um fjárveitingu. Þrátt fyrir það eru lögin talin ábótavön og niðurstöður fyrri rannsóknar gefa til kynna að munur sé á núverandi starfsháttum í opinberum verkefnum á Íslandi og þeim aðferðum sem teljast fræðilega bestar í dag á sviði hagkvæmnisathugana. Rannsókn þessarar ritgerðar byggir á þessari niðurstöðu og felur í sér nýjan vinkil á viðfangsefnið með því að taka fyrir hagkvæmnisathuganir í einkaframkvæmdum á Íslandi. Fræðilegi kafli ritgerðarinnar ákvarðar þá vinnuferla sem teljast fræðilega bestir á sviði hagkvæmnisathugana á frumathugunarstigi framkvæmda. Eigindleg rannsókn byggð á viðtölum er gerð þar sem átta einkaframkvæmdir eru skoðaðar og niðurstöður þeirra bornar saman við þær aðferðir sem teljast fræðilega bestar í dag. Markmið rannsóknarinnar er að auka þekkingu á því hvernig staðið er að hagkvæmnisathugunum á Íslandi í dag með því að bera saman niðurstöður þessar rannsóknar og niðurstöður fyrri rannsóknar fyrir opinberu verkefnin. Niðurstöður sýna að marktækur munur er á því hvernig staðið er að hagkvæmnisathugunum í einkaframkvæmdum og opinberum framkvæmdum en einkaframkvæmdirnar samræmast fræðilega bestu aðferðum betur. Þrátt fyrir það þá vantar meira en helming vinnuferla upp á í báðum tilfellum til þess að hægt sér að flokka aðferðirnar sem fræðilega bestu starfshætti á sviði hagkvæmnisathugana. Lykilorð: Verkefnastjórnun; hagkvæmniathugun; kostnaðar-/ábatagreining.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Ósk Stefánsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/20515
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/20515

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Ósk Stefánsdóttir 1983-. Feasibility studies in construction projects in Iceland. 2015. http://hdl.handle.net/1946/20515