Back to results

Reykjavík University

Hagsmunir barna í brottnámsmálum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er leitast við að svara þeirri spurningu hvort reglur Haagsamningsins og brottnámslaga nr. 160/1995 sem kveða á um skil á barni séu of fortakslausar eða hvort dómstólar hafi nægt svigrúm til þess að synja um afhendingu barns ef hagsmunir þess mæla með því. Í fyrri hluta ritgerðar er gerð grein fyrir lagaumhverfinu í brottnámsmálum. Fjallað er um Haagsamninginn, lög nr. 160/1995 og þau ákvæði barnalaga nr. 76/2003 sem helst koma til skoðunar í brottnámsmálum hér á landi. Einnig er fjallað um Evrópusamninginn og helstu reglur samkvæmt honum. Þá er í fyrri hluta ritgerðar gerð grein fyrir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu og ákvæðum þeirra sem og stjórnarskrárinnar sem tengjast hvað mest úrlausn brottnámsmála hér á landi. Í síðari hluta ritgerðar er fjallað um hvað telst vera ólögmætt brottnám barns samkvæmt Haagsamningnum og 11. gr. laga nr. 160/1995. Í sérstökum kafla er fjallað um hagsmuni barna í brottnámsmálum, helstu sjónarmið tengd meginreglunni um það sem barni er fyrir bestu og hvernig sú meginregla birtist í Haagsamningnum. Þá er gerð grein fyrir undantekningarheimildum Haagsamningsins og 12. gr. brottnámslaga en auk þess fjallað um hvernig börn geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri í brottnámsmálum. Farið er yfir dómaframkvæmd Hæstaréttar í málum á grundvelli Haagsamningsins og laga nr. 160/1995, dómarnir reifaðir og ályktanir af dómaframkvæmd dregnar. Í lok ritgerðar er gerð grein fyrir niðurstöðum skrifanna en af þeim má ráða að dómstólar hér á landi taki ekki mið af mannréttindaákvæðum við úrlausn brottnámsmála jafnvel þótt algengt sé að málsaðilar vísi til slíkra ákvæða til stuðnings kröfum sínum. Þrátt fyrir það er niðurstaðan almennt sú að dómstólum eru ekki settar of þröngar skorður þegar kemur að því að dæma í brottnámsmálum og talið að þær undanþáguheimildir sem Haagsamningurinn og brottnámslögin hafa að geyma eigi að veita dómstólum nægt svigrúm til þess að hagsmuna þeirra barna sem eiga í hlut hverju sinni sé gætt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vala Hrönn Viggósdóttir 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19289
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19289

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vala Hrönn Viggósdóttir 1971-. Hagsmunir barna í brottnámsmálum. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19289