Reykjavík University
Dyflinnarsamstarfið og bann við brottvísunum flóttamanna til staða þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu
Abstract
dc:description.abstractEfni ritgerðarinnar lýtur að flóttamönnum. Fjallað verður um Dyflinnarreglugerð Evrópusambandsins, sem Ísland ber að fylgja í gegnum Schengen – samkomulagið og hefur það að markmiði að ákvarða hvaða aðildarríki beri ábyrgð á að taka hælisumsókn til efnisumfjöllunar. Jafnframt verður meginregla þjóðaréttar um non-refoulement skoðuð, en hún leggur bann við brottvísunum og endursendingum flóttamanna til ríkja þar sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Fjallað verður um non-refoulement ákvæði í þremur grundvallar mannréttindasáttmálum; Flóttamannasamningnum frá 1951, Samningi gegn Pyndingum og Mannréttindasáttmála Evrópu. Reynt verður að skoða hvort og þá hvernig reglur Dyflinnarsamstarfsins samrýmast meginreglunni um non-refoulement, sérstaklega í ljósi þess að Dyflinnarsamstarfið byggir á sjónarmiðinu um „öruggt þriðja ríki.“ Þ.e. að aðildarríki samstarfsins séu öll örugg ríki fyrir flóttamenn og því geti endursendingar á grundvelli þess farið fram með tiltölulega einföldum hætti. Á Íslandi spilar Dyflinnarsamstarfið stórt hlutverk, en stór hluti þeirra flóttamanna sem sækja hér um hæli falla undir samstarfið og eru því endursendir til annarra ríkja innan Evrópu. Verður því jafnframt farið yfir innlenda löggjöf um flóttmenn og hælisleitendur og leitast við að kanna hvort meginreglan um non-refoulement er nægjanlega tryggð í löggjöfinni. Þeir dómar sem fjallað verður um í ritgerðinni sýna að ríki getur ekki endursent aðila til annarra ríkja á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins ef fyrirséð er að viðkomandi muni verða fyrir ofsóknum af einhverju tagi. Hins vegar hefur í því ljósi verið sett hátt viðmið, um það hvenær slíkar endursendingar eru óheimilar, sem telja verður vafasamt að samrýmist reglunni um non-refoulement. Hvað varðar Íslenskt lagaumhverfi og framkvæmd virðst sem non-refoulement reglan sé nægjanlega tryggð í lögum og eru dómsniðurstöður Hæstaréttar hvað varðar mál á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins í samræmi við niðurstöður alþjóðlegra dómstóla sem jafnframt verður fjallað um.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Böðvar Einarsson 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19283
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19283