Back to results

Reykjavík University

Réttur viðsemjanda til þess að slíta gagnkvæmum samningi í kjölfar gjaldþrots skuldara

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á það hvenær viðsemjandi getur slitið gagnkvæmum samningi í kjölfar gjaldþrots skuldara. Um gagnkvæma samninga við gjaldþrotaskipti gilda ákvæði XV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991 (gþl.). Í upphafi ritgerðar er í stuttu máli farið yfir sögu kaflans og rökin fyrir reglum hans. Jafnframt er farið yfir gildissvið kaflans og þar með hvenær samningar falla þar undir. Í þriðja kafla er fjallað um heimild þrotabús samkvæmt 1. mgr. 91. gr. gþl. til þess að ganga inn í gagnkvæma samninga þrotamanns og undantekningar þar á sem leitt geta til þess að viðsemjandi losni undan samningum. Einnig er fjallað um hlutverk skiptastjóra við ákvörðunartöku um framhald samninganna og réttaráhrif þess ef þrotabú nýtir heimild sína til þess að ganga inn í þá. Í fjórða kafla er vikið að ákvæði 93. gr. gþl. sem er meginviðfangsefni ritgerðar þessarar en það kveður á um rétt viðsemjanda til þess að slíta gagnkvæmum samningi í þremur tilvikum. Í fyrsta lagi þegar þrotabú nýtir ekki heimild sína samkvæmt 1. mgr. 91. gr. gþl., í öðru lagi þegar þrotabú leggur ekki fram tryggingu innan hæfilegs frests og í þriðja lagi ef þrotabú hefði öðlast riftunarrétt ef ekki hefði komið til gjaldþrotaskipta. Farið er yfir það hvað felst í hverju tilviki fyrir sig og hvenær viðsemjandi getur slitið samningi á grundvelli þeirra. Í fimmta kafla er farið yfir þær sérreglur sem gilda um leigusamninga, ráðningarsamninga og samninga um önnur varanleg réttarsambönd og hvort og þá hvaða áhrif þær hafa á rétt viðsemjanda til þess að losna undan þeim.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sandra Steinarsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/19261
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/19261

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sandra Steinarsdóttir 1989-. Réttur viðsemjanda til þess að slíta gagnkvæmum samningi í kjölfar gjaldþrots skuldara. 2014. http://hdl.handle.net/1946/19261