Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um rétt verjanda til að segja sig frá verki á öllum stigum máls á grundvelli 6. mgr. 21. gr. lögmannalaga með hliðsjón af 2. mgr. 12. gr. siðareglna LMFÍ. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvort sá réttur sem verjendum er tryggður til að segja sig frá verki skerði að einhverju leyti rétt sakbornings til að fá notið lögfræðiaðstoðar við meðferð sakamáls á grundvelli 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár Íslands og 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Fjallað er um samband sakbornings og verjanda við meðferð sakamála til átta sig á mikilvægi þess hlutverks sem verjandi gegnir gagnvart sakborningi. Því næst er gerð grein fyrir ákvæði 6. mgr. 21. gr. lögmannalaga um rétt verjanda til að segja sig frá verki og því skilyrði sem sá réttur er háður um að skjólstæðingur hans verði ekki fyrir réttarspjöllum. Farið er yfir niðurstöður úrskurðarnefndar Lögmannafélags Íslands í þeim kvörtunum er varða ákvörðun verjanda um að segja sig frá verki í þeirri viðleitni að átta sig betur á framkvæmd ákvæðisins. Jafnframt er fjallað um ákvörðun verjanda í Al-Thani málinu um að segja sig frá verki sem hlaut mikla athygli og er helsta ástæða þess að umrætt ritgerðarefni varð fyrir valinu. Einnig er fjallað um þær afleiðingar sem ákvörðun verjanda getur haft í för með sér, bæði hvað hann sjálfan varðar sem og fyrir trúverðugleika réttarkerfisins. Að lokum er ákvæði 6. mgr. 21. gr. lögmannalaga borið saman við framkvæmd í öðrum norrænum ríkjum. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að ákvæði 6. mgr. 21. gr. lögmannalaga þarfnast nánari skýringar sé horft til framkvæmdar í öðrum norrænum ríkjum. Með því að tilgreina nánar við hvaða aðstæður verjendum sé heimilt að segja sig frá verki sé hægt að draga úr réttaróvissu og auka fyrirsjáanleika slíkrar ákvarðana sem eykur réttaröryggi sakbornings og skilvikni réttarkerfisins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Klara Jónsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/19247
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/19247