Back to results

Reykjavík University

Samband umferðaröryggis og eiginleika í gatna- og byggðaskipulagi

Abstract

dc:description.abstract

Eftirfarandi verkefni er framlag til meistaraprófs í byggingarverkfræði með sérhæfingu á sviði umferðar og skipulags við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Verkefnið felur í sér athugun á sambandi umferðaröryggis og gatna- og byggðaskipulags sem felst annars vegar í fræðilegri umfjöllun og hins vegar í rannsókn með umfangsmiklu gagnasafni fyrir höfuðborgarsvæðið. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvort mælanlegir þættir í gatna- og byggðaskipulagi svo sem umferðarmagn, skipulagstölur og eiginleikar gatnakerfis hafi marktæk áhrif á umferðaröryggi sem mælt er í fjölda slysa. Verkefnið er nálgast með fræðilegri úttekt, gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og líkanagerð. Umferðaröryggismál eru gríðarlega breiður og umfangsmikill málaflokkur sem krefst víðrar nálgunar. Í fræðilegri umfjöllun er því lögð áhersla á fjölbreytta umfjöllun til þess að bera kennsl á heildar samhengið en jafnframt rýnt í aðferðafræði og niðurstöður annarra rannsókna á áhrifum gatna- og byggðaskipulags á umferðaröryggi. Í rannsókninni var unnið með umfangsmikið safn gagna þar sem slys voru flokkuð og sett í samhengi við aðrar breytur með því að nota skipulagsreiti á höfuðborgarsvæðinu sem grunneiningu. Neikvæð tvíkostalíkön (e. Negative binomial model) voru notuð til að athuga hvort að marktækt samband væri á milli umferðaröryggis (slysafjölda í reitum) og ýmissa breyta sem lýsa eiginleikum umferðar, borgarskipulags og gatnakerfis. Niðurstöður tölfræðigreiningar sýna marktækt samband milli umferðaröryggis og eiginleika í gatna- og byggðaskipulagi. Marktækt samband er á milli gatnamynsturs og fjölda ökutækjaslysa með minniháttar meiðslum þar sem samband er á milli aukins slysafjölda í lykkju- og botnlangamynstri samanborið við rúðunetsmynstur og samsíða boglínumynstur. Samverkun gatnamynsturs og íbúafjölda hefur marktæk áhrif á slysafjölda í mörgum líkönum. Niðurstöður sýna jafnframt að í mörgum tilfellum er marktækt samband á milli slysafjölda og landnotkunar ásamt fleiri breytum sem lýsa þéttleika verslunar- og atvinnuhúsnæðis, gatnaþéttleika, reitum með eða án stofnbrauta, fjölda ljósastýrðra gatnamóta og umferð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vigdís Lúðvíksdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17334
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17334

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vigdís Lúðvíksdóttir 1982-. Samband umferðaröryggis og eiginleika í gatna- og byggðaskipulagi. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17334