Reykjavík University
Réttur geðsjúkra fanga til heilbrigðisþjónustu og skyldur ríkisins til að veita hana
Abstract
dc:description.abstractFangar sem glíma við geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir hefur fjölgað í fangelsum og er vandi þeirra orðinn sýnilegri en áður. Er hér átt við fanga sem glíma við alvarlegar persónuleikaraskanir og geðsjúkdóma sem þarf að meðhöndla með meðferðum og viðeigandi lyfjagjöf. Úrræði og þjónusta fyrir þennan hóp fanga hefur verið af skornum skammti. Geðlæknaþjónusta í fangelsum er mjög takmörkuð og tímabundnar innlagnir á geðdeildir nánast útilokaðar. Þessir einstaklingar virðast ekki eiga heima á geðdeildum og fá ekki þá sérhæfðu þjónustu sem þeir þarfnast í fangelsum. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir þeim ákævðum íslenskra laga sem fjalla um réttarstöðu fanga, þegar kemur að heilbrigðisþjónustu, með áherslu á fangelsið Litla-Hraun. Íslenskar sem og erlendar rannsóknir eru skoðaðar um málefnið og dregin upp mynd af stöðu geðsjúkra fanga. Heilbrigðisþjónusta telst til grundvallar mannréttinda og eru því mannréttindi þessara einstaklinga einnig til skoðunar og gerð grein fyrir 68. gr. stjórnarskrárinnar og 3. mgr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Ákvæðunum er sérstaklega ætlað að skírskota til frelsissviptra einstaklinga, enda meiri hætta á að einstaklingur sæti pyndingu, eða ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu ef þeir eru ekki frjálsir menn. Þar sem ekki hefur reynt á ákvæði 68. gr. stjórnarskrárinnar fyrir dómstólum er dómaframkvæmd Mannréttindardómstóls Evrópu skoðuð, til að varpa ljósi á möguleg álitamál ef ákvæðið kæmi til kasta fyrir íslenskum dómstólum. Þá hafa bæði íslenskir og erlendir eftirlitsaðilar ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að geðsjúkir fangar séu ekki að fá viðunandi geðheilbrigðisþjónust í fangelsum og þurfi á meiri og sérhæfðari þjónustu að halda. Að endingu eru niðurstöður ritgerðarinnar kynntar og skýrt frá mögulegum réttindabrotum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elísa Sóley Magnúsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17314
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17314