Back to results

Reykjavík University

Frá forræði til sjálfræðis : ný nálgun á lögræði fatlaðs fólks

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að skoða lögræðismál fatlaðs fólks og rétt þess til að njóta lögformlegs hæfis síns eins og það er verndað í 12. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF). Í ritgerðinni er notast við fötlunarfræðileg sjónarhorn til dýpkunar á lögfræðilegri greiningu á mannréttindaþróun fatlaðs fólks. Síðustu áratugi hefur ákveðin viðmiðsbreyting átt sér stað sem lýst hefur verið sem þróun frá læknisfræðilegu eða einstaklingsbundnu sjónarhorni á fötlun yfir í félagslegra mannréttindasjónarhorn á fötlun. Í því felst að hætta þurfi að líta á fatlað fólk sem viðföng annarra í þörf fyrir vernd eða ölmusu en þess í stað viðurkenna það sem gerendur í eigin lífi sem eiga rétt á stuðning og þjónustu til að geta tekið þátt í samfélaginu til jafns við aðra. Þessi þróun helst jafnframt í hendur við þróun á inntaki jafnréttishugtaksins frá formlegu jafnrétti yfir í efnislegt jafnrétti. Gerð er grein fyrir því hvernig SRFF birtir þessa þróun en hún sést skýrlega í áherslu í 12. gr. á að fatlað fólk sé viðurkennt sem aðilar að lögum, njóti lögformlegs hæfis til jafns við aðra og njóti aðstoðar eða stuðnings ef þess þarf, frekar en það sé svipt þessum réttindum. Þá hefur Mannréttindadómstóll Evrópu jafnframt verið að nálgast þessa þróun í túlkun sinni á Mannréttindasáttmála Evrópu. Við greiningu á íslenskum lögræðislögum nr. 71/1997 og réttarframkvæmd þeirra ásamt lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011 er ljóst að breytinga er þörf til að uppfylla kröfur 12. gr. SRFF. Helstu tillögurnar sem settar eru fram snúa að því að sníða lögræðissviptingum þrengri stakk en auka við heimildir persónulegs talsmanns sem skv. réttindagæslulögunum geta aðstoðað fatlað fólk við að beita lögformlegu hæfi sínu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17313
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17313

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir 1981-. Frá forræði til sjálfræðis : ný nálgun á lögræði fatlaðs fólks. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17313